Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 183
181
9. íþróttir.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Ákveðið er að gera sundlaug í kaupstaðnum ásamt til-
heyrandi böðum.
Borgarfi. Allmikill áhugi á útiíþróttuin og sundkunnátta í framför.
Borgarnes. Töluvert iðkaðar hér í Borgarnesi, en lítið annars staðar
í læknishéraðinu. Leikfimi kennd í barnaskólanum, og ungmennafé-
lagið heldur uppi leikfimi og íþróttaæfingum. Knattspyrnuvöllinn
þóttust Bretarnir þurfa til sinna þarfa, og hefur hann ekki endur-
heimzt. Þar fyrir knattspyrna niður lögð. Skautaferðir æfðar, þegar
tækifæri býðst. Sund kennt í sambandi við barnaskóla og dálítið iðkað
á sumrin. I samkomuhúsinu í Borgarnesi er kennd leikfimi barna-
skólans. Getur þetta gengið, þar sem lnisið er þvegið vandlega á morgn-
ana og notað til íþróttaiðkana fyrir sýningartima á kvöldin.
Ólafsvílzur. íþróttir engar.
Stykkishólms. Úti um sveitirnar er iþróttalíf frekar dauft. Þó hafa
ungmennafélög gengizt fyrir námskeiðum á árinu í hreppunum. Hafa
þau staðið yfir um mánaðartíma og nokkurt gagn að orðið. í Stykkis-
hólmi er íþróttalíf töluvert, bæði inniíþróttir og vetraríþróttir. Á ár-
inu var komið fyrir gufubaðstofu í kjallara barnaskólans, og tók hún
iil starfa í desember. Skólabörnin eiga að hafa þar ókeypis bað einu
sinni í viku.
Dala. Sundkennsla fer fram i Sælingsdalslaug.
Bíldudals. Nokkur framför hér i íþróttamálum og talsverður áhugi
meðal unga fólksins. Suðurfjarðarhreppur hefur nú látið íþróttafé-
laginu hér á Bíldudal í té land undir íþróttaleikvang og veitt félag-
inu nokkurn styrk til starfsemi sinnar. Gætir þar góðs skilnings á
þýðingu og uppeldisáhrifum heilbrigðra íþrótta fyrir uppvaxandi
æsku.
Ilóls. Sundlaugin í Bolungarvík var starfrækt á síðast liðnu sumri.
lsafi. Áhugi á íþróttum er mikill. 2 knattspyrnufélög eru í bænum,
sem einnig leggja stund á frjálsar iþróttir. Að sumri til handbolta, en
leikfimi á vetrum. Hnefaleikur var og nokkuð iðkaður hér í vetur og
islenzk glíma. A árinu voru stofnuð badminton- og tennisfélög. Skíða-
félög eru 2 starfandi i héraðinu, annað á ísafirði og hitt í Evrarhreppi.
Eru skíðaferðir iðkaðar af miklu kappi. Mikill bagi er að vöntun sund-
laugar. Verða menn að sækja alla sundkennslu inn í Beykjanes, og þvi
læra flestir hér að synda, en vantar alla æfingu eða þjálfun. Leikfimis-
húsið er og orðið of lítið. Þetta á allt að standa til bóta á næstunni, því
að <)II þessi mannvirki 'eru þegar til á pappírnum. Sjóböð mætti nokkuð
slunda hér, ef bærinn vildi sýna æskunni þann sóma að byggja dálítið
timbursundskýli með sólskýli á eyraroddanuin. Slikt sundskýli var
hér fyrir nokkrum árum. Það brotnaði niður af veðri og hefur ekki
verið byggt upp aftur.
Rcgkjarfi. íþróttaiðkanir engar, en álnigi er nú inikill á því að koma
upp sundlaug.
Hólmavikur. Dálítið iðkaðar, en ekki reglulega. Stafar þetta senni-
lega af vöntun leikfimishúss, íþróttavallar o. s. frv.