Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 190
188
Reykdæla. Ferðaðist samtals 4286 kra, þar af 3888 í bíl, 366 ríðandi
og 32 gangandi. Ferðaðist að meðaltali 25,5 km á dag.
Öxarfl. Var samanlagt í ferðum að heinían rúma 30 sólarhringa.
Síðu. Meðan hér var enginn sími og engar bifreiðir, var oft erfitt
að sækja lækni. Þá varð t. d. að fara á hestutn frá Hnappavöllum í
Öræfum alla leið að Breiðabólsstað, um 100 km yfir 3 stórvötn óbrúuð
og mörg' smærri. Svo þegar komið var á leiðarenda, gat farið svo, að
læknirinn væri í ferð vestur í Álftaveri, nærri 50 km frá Breiðabóls-
stað. Fyrir lækninn var það líka allt annað en notalegt, er hann var
vakinn um miðja nótt óviðbúinn til þess að fara út í Álftaver eða
austur í Öræfi. Nú keinur tæplega fyrir, að ekki hafi verið talað við
lækni í síma, áður en hann er sóttur. Nú eru líka bílar notaðir oftar
en hestar neina í Öræfaferðum, en líka í þeim er bíll oft notaður
austur í Fljótshverfi.
Vestmannaeyja. Ferðalög í aðkomuskip að kalla engin, síðan stríðið
hófst. I landi lengstu ferðirnar upp fyrir Hraun og austur á Kirkjubæ,
aðeins hálfrar stundar gangur eða svo, í bíl fáar mínútur.
Grimsnes. Á þessu ári fékk héraðslæknir eftir langa og harða bar-
áttu bíl til afnota við læknisferðir. Skipti þá mjög um til batnaðar,
þó að ekki sé hægt að nota hann nema í hálfu héraðinu vegna brúar-
leysis á Hvítá hjá Iðu.
15. Slysavarnir.
Læknar láta þessa getið:
fíoryarnes. Engar í héraðinu. Ameríska setuliðið þóttist ætla að
kenna Borgnesingum loftvarnir og kallaði menn á fund. Lýst var þar
grundvallaratriðum varðandi skaðsemi sprengna og hversu skyldi
slöklcva eld frá þeim. Átti svo að halda verklegar æfingar síðar. Var
boðað til hennar, en þá gerði vitlaust rok, svo að ekki varð aðhafzt,
og fuku allar loftvarnir út í buskann í því veðri. Fyrir Mýrunum er
eitt mesta sjóslysapláss landsins og er allt til þessa vitalaust. Nú er að
vísu vitinn byggður á Þormóðsskeri, en ljósfærin vantar. Þegar þau
koma, verður vitinn væntanlega hinn mesti leiðarvísir og bjargvættur
sjófarendum. Ekki er ég svo kunnugur, að ég geti sagt um, hvort likindi
séu til þess, að björgunartæki komi að haldi fyrir Mýrum. Þó hygg
ég, að ekki sé álitlegt um það, sérstaklega vegna þess, hve útgrynnið
nær langt, og vegir eru ógrciðfærir til þess að geta komið tækjum á
hæfilega staði, ef á þyrfti að halda, því að auk hinnar vanalegu veg-
leysu, myndu þá bætast við torleiði af sjó og veðri, þegar slysalegast
á stæði.
Bildudals. Karla- og kvennadeild úr Slysavarnarfélagi Islands hafa
verið til hér. Karladeildin mun nú endanlega sáluð, en kvennadeildin
heldur 1 til 2 skemmtisamkomur á ári og nurlar saman nokkrum
hundruðum króna árlega til slysavarna.
Sauðárkróks. Slysavarnárdeildir eru 2 á Sauðárkórki og starfa að
fjársöfnun til slysavarna eins og að undanförnu.
Aknreyrar. Hér eru til 2 slysavarnardeildir, bæði karla og kvenna.
Þá hafði héraðslæknir námskeið í hjálp í viðlögum með unglingum