Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 191
189
í Glerárþorpi, og var það einkuin með tilliti til þeirrar slysahœttu, sem
af loftárásum gæti stafað.
Höfðahverfis. Hér starfar slysavarnardeild.
Sei/ðisfj. Slysavarnardeild á að heita starfrækt í bænum og fæst eitt-
hvað við fjársöfnun í því augnamiði.
Berufj. Deild úr Slysavarnarfélagi íslands starfar hér, og fyrir til-
hlutan hennar var bjarghringur og krókstjaki settur hér á aðal-
bryggjuna.
Vestmannaeijja. Eykyndill, slysavarnardeild úr Slysavarnarfélagi
íslands, starfar að slysavarnarmálum ásamt Björgunarfélagi Vest-
mannaeyja.
16. Tannlækningar.
Læknar láta þessa getið:
Borgarfj. Ég geri við tennur, og fjölgar þeim, sem notfæra sér það.
1 ráði er, að ég geri við tennur í nokkrum barnaskólum í vetur.
Borgarnes. Upp lir skólaskoðuninni í Borgarnesi varð að ráði með
mér og skólanefnd að fá nágranna minn, Magnús Ágústsson héraðs-
lækni, til þess að framkvæma viðgerð á tönnum skólabarnanna. Vann
hann að þessu nokkra daga. Hér eins og annars staðar eru tann-
skemmdir einir algengustu kvillar. Nokkrar tannhreinsanir gerðar,
og fékk fólkið tennur í Reykjavík. Er talið, að annríki tannlækna í
Reykjavík valdi, að færri fari þangað til þess að fá gert við tennur
sínar en ella.
Hólmavíkur. Tannsmiður kemur hingað árlega og' hefur haft hér
nóg að gera.
Sauðárkróks. Tannlæknir frá Siglufirði dvaldist á Sauðárkróki um
hálfsmánaðar tíma til starfa, en mun því miður hafa haft frekar
Jitið að gera.
Ólafsfj. Ég' hef oft óskað þess, að tannlæknir fengist í héraðið, þó að
ekki A^æri nema einu sinni á ári. Eg þóttist því hafa himin höndum
tekið, er K. Sonnenfeld tannlæknir á Siglufirði kom á árinu og var
hér um tíma. En ég varð fyrir vonhrigðum um fólkið. Það lagði
aðaláherzlu á tannsmíði og tannútdrátt, en ekki á viðgerðir. Ég býst
við, að örfáir hafi látið gera við tennur auk mín, sem lét gera við
ténnur í mínum eigin hörnum.
Vopnafj. Snemma á árinu féltk ég loforð Óla Baldurs Jónssonar
tannsmiðs á Eskifirði fyrir því, að hann kæmi hingað í júlímánuði til
þess að smíða tennur í fólk hér. Var á þessu mikil þörf, því að eng'inn
tannlæknir hafði komið í héraðið frá því 1934, er Leifur Sigfússon
tannlæknir í Vestmannaeyjum dvaldist hér nolckrar vikur við tann-
smíði. Til undirbúnings komu tannlæknisins var alhreinsaður 21
munnur í marz- og aprílmánuði. Óli Baldur kom svo hingað síðara
liluta maímánaðar ásamt konu sinni, sem einnig er tannsmiður.
Dvöldust þau lijón hér rúmar 3 vikur og smíðuðu tennur í rúmlega
20 manns.
Seyðisfj. Tilfinnanleg vöntun á tannlækni. Síðustu 2 árin hefur ekki
einu sinni umferðatannlæknir komið hingað eins og áður, og þó að
fólk taki sér dýra ferð á hendur til að finna tannlækni í Reykjavík,