Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 202
200
Blöndaós. Húnvetningum virðist annað betur gefið en félagsþroski.
Var þó svo fyrir eina tíð, að þeir höfðu forgöngu í verklegum fram-
kvæmdum og ýmiss konar framförum á búnaðarsviðinu, og má gjarna
minnast þess í skýrslu þessa árs, því að árið 1942 voru liðin 100 ár,
síðan hið fyrsta hreppsbúnaðarfélag var stofnað á íslandi, og var það
hér í Húnavatnssýslu. Það gaf og út búnaðarritið Húnvetning, sem
mun vera fyrsta tímaritið um verklegar framkvæmdir, sem gefið er
út af bændum. í mínu ungdæmi fóru metorð einstakra bænda innan-
héraðs mest eftir því, hvernig þeir stóðu í stöðu sinni sem bændur
og hversu vel þeir sátu jarðir sínar, en nú orðið er lýðskrum, heimtu-
lrekja í garð ríkisins og úlfúð x garð annarra stétta miklu líklegra
til valda og metorða í þessu héraði heldur en það að vera fyrirmyndar
hóndi. Þessi sýsla er eitt bezta búnaðarhérað landsins frá náttúrunnar
hendi, og ég fyrir mitt leyti hef þá trú, að flóttinn úr sveitunx henna.r
eigi sér engu síður andlegar orsakir en efnalegar. Sá heilbrigði félags-
og framfaraandi, sem einkenndi forystumenn húnvetnsku búnaðar-
samtakanna fyrir 100 árum, hefur farið þverrandi.
Sauðárkróks. Allmörg heimili í héraðinu hafa reist vindrafstöðvar,
og þótt rafurmagnið sé aðeins til ljósa eða lítið eitt fram yfir það. er
að því mikið hagræði. En óvíst mun um ending á þesum stöðvum.
Á Sauðárkróki er nú rafstöðin löngu hætt að fullnægja rafurinagns-
þörfinni, og er byrjað að ræða um nýja virkjun, en erfitt urn fram-
kvæmdir sem stendur.
Ólafsfi. Rafveitan fullgerð rétt fyrir jólin. Hitaveitan: Sameinaðar
heitu lindirnar á Garðsdal og byggt yfir þær. Lokið við undirhleðslu
fyrir aðalleiðsluna til kauptiinsins. Lögð leiðsla i eina götu í kauptún-
inu og inntök frá henni. íþróttafélagið gengst fyrir sundlaugarbygg-
ingu. Grafið fyrir þrónni, sem á að verða 8X25 metrar. Haldið var
áfram rannsókn á grjóti til hafnargerðar. Enn fremur áframhaldandi
rannsókn af verkfræðingi á hafnarstæðinu, og varð niðurstaðan sú,
að vel kleift væri og að ýmsu leyti auðvelt að gera hafnarkví, er nægja
mundi fyrir allstóran bátaflota og dýpka mætti svo, að venjuleg kaup-
skip gætu lag'zt við bryggju. Á hreppsfundi var samþykkt, að allir
hreppsbúar gæfu andvirði vinnu sinnar og afla ákveðinn dag á árinu,
sem var í maí. Áskotnaðist hafnarsjóði þá kr. 10850. Enn fremur
var hreppurinn meðútflytjandi að einum ísfiskfarmi til Englands um
sumarið vegna hafnarsjóðs, og varð hagnaðurinn 6100 kr. Ágóði af
marsvínasölu, kr. 1800, var einnig látinn renna í hafnarsjóð, og loks,
Jétu síldarsaltendur 1100 kr., sem var óráðstafaður arður, renna í
sama sjóð.
Öxarfi. Framfarir nær hvergi, en afturför í flestu. Aðalbreytingin
er hin mikla verðhækkun á flestu og hin mikla óvissa á öllu, sem
fyrir líðandi stund er jafnvel verri en verðhækkunin sjálf. Óvissan
veldur tvístigi og kvíða, sem ásamt of mikilli vinnu þorra manna
mæðir hart á þreki manna, ekki síður andlega. Hjá allmörgum gxetir
þess, að þeir sjá ekki annað en gróða og alsældir, en hinir munu
flestir, sem ala kvíða, á bak við, að minnsta kosti.
Vopnafi. Kaupfélag Vopnfirðinga lét bvggja viðbótargeymslu all-
mikla við frystihúsið, sem taka mun uin 1500 kroppa. Auk þess lét