Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 12
ÁBYRGAR KONuR OG SjÚKIR KARLAR
25
ingu um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum, sem gaf
út fræðslumyndina Fáðu já sem var sýnd í elstu bekkjum allra grunnskóla árið
201244 og átakinu Samþykki er sexý sem Samþykkishópurinn og Nei hreyfingin
stóðu að árið 2013.45 Í þessum átaksverkefnum var lögð áhersla á mikilvægi
þess að samþykki fáist áður en kynlíf er stundað með annarri manneskju.46
Nýlega hefur þó aukist umræða um hvenær samþykki verður að þvinguðu
samþykki.47 Sú umræða skapaðist í kjölfar rannsókna sem sýna að orðræða
sem notuð er í átaksverkefnum, sem hafa það að markmiði að skapa umræðu
og auka meðvitund, endurspeglar oft ekki upplifun brotaþola á ofbeldinu og
er í einhverjum tilfellum talin gera illt verra.48 Það kallar því á endurskoðun
á orðfæri sem notað er um nauðganir meðal baráttuhreyfinga og stofnana.49
Í viðtölunum var hugmyndin um að brotaþolar beri ábyrgð á nauðg-
unum undirliggjandi og birtist m.a. sem druslustimplun (e. slut shaming).
Tvöfalt siðgæði er ríkjandi þegar kemur að kynverund kvenna og karla, en
kynhegðun kvenna er álitin neikvæð á meðan kynferðisleg virkni karla þykir
mjög jákvæð. Druslustimplun er ríkjandi stjórntæki sem stýrir konum með
smánun og skömm.50 Í umræðum kom fram að það þótti druslulegt fyrir
konur að hitta einhvern sem þú þekkir ekki, s.s. í gegnum miðla eins og á
Einkamál.is, og brotaþoli þótti síður trúverðugur ef nauðgun átti sér stað
undir slíkum kringumstæðum.
44 „Fáðu já“, Stjórnarráðið, e.d., sótt 8. apríl 2019 af https://www.stjornarradid.is/verkefni/
felags-og-fjolskyldumal/malefni-barna/ofbeldi-gegn-bornum-fraedsluefni/fadu-ja/.
45 Linus O. Gunnarsson, Sólveig R. Másdóttir, Hertha Richard Úlgarsdóttir, Oddur
Sigurjónsson, Karen Ásta Kristjánsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir, Samþykki er
sexý, Reykjavík: Samþykkishópurinn og Nei-hreyfing Femínistafélags Íslands, 2013.
46 Sama heimild. „Fáðu já“.
47 Áslaug Karen jóhannsdóttir, „Næsta bylting: konur deila sögum af þvinguðu
samþykki“, Stundin, 20. febrúar 2018, sótt 8. apríl 2019 af https://stundin.is/
grein/6263/naesta-bylting-konur-deila-sogum-af-thvingudu-samthykki/.
48 Linda Martín Alcoff, Rape and resistance, bls. 9. Lena Gunnarsson, „‘Excuse me,
but are you raping me now?‘ Discourse and experience in (the grey areas of) sexual
violence“, Nora-Nordic Journal of Feminist and Gender Research, 26: 1/2018, bls. 4-18,
hér bls. 15.
49 Lena Gunnarsson, „‘Excuse me, but are you raping me now?‘“, bls. 15.
50 Rannveig Á. Guðjónsdóttir og Gyða M. Pétursdóttir, „Kynferðiseinelti og mótun
kvenleikans í íslenskri skólamenningu“, bls. 51-53. Rannveig Á. Guðjónsdóttir
og Gyða M. Pétursdóttir, „Reynsla kvenna af kynferðisofbeldi í nánu sambandi
á unglingsárum“, bls. 3. Karen Dögg Bryndísar- og Karlsdóttir, Druslustimplun:
„Þetta er ekki manneskja fyrir þér, þetta er bara netið“, óútgefin meistararitgerð,
Reykjavík: Háskóli Íslands, 2015, bls. 49, sótt 8. apríl 2019 af https://skemman.is/
handle/1946/22729.