Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 28
Guðrún Steinþórsdóttir
„sambýliskonur […] í sama kroppi,
í sama höfði, í sama blóði“
Um samband Dísu og Gríms
í Dísusögu eftir Vigdísi Grímsdóttur
[…] ég leyfi mér að fullyrða að í raun og sann hafa þessi fjögur
skáld [Halldór Laxness, Svava Jakobsdóttir, John Steinbeck og
Sylvia Plath], og öll hin sem henni hefur dottið í hug að nefna við
hitt og þetta tækifærið, ekki haft nándar nærri jafnmikil áhrif á líf
hennar og ritstörfin öll og tveir vondir menn höfðu fyrir fimmtíu
árum þegar þeim tókst með illsku sinni og græðgi að tæma gleðina
og traustið úr barnslegu brjósti mínu.
Viltu kannast við þetta núna, Gríms?
Ég veit það ekki.
– Viltu ekki kannast við að allar bækurnar þínar hafi fjallað meira
og minna um okkur tvær, um kúgarann og hinn kúgaða, um lífið og
óttann, um raddirnar í höfðinu? segi ég.
– Ansi held ég að það sé mikil einföldun, Dísa mín, segir hún […]1
Þetta textabrot er fengið úr Dísusögu: Konunni með gulu töskuna eftir Vigdísi
Grímsdóttur. Sagan kom út árið 2013 og hefur verið flokkuð sem skáld
1 Vigdís Grímsdóttir, Dísusaga: Konan með gulu töskuna, Reykjavík: JPV, 2013, bls.
131. Eftirleiðis verður vísað til sögunnar með blaðsíðutali einu í sviga.
Ritið
1. tbl. 19. árg. 2019 (41–78)
Ritrýnd grein
© 2019 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundur greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI: 10.33112/ritid.19.1.3
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).