Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 30
„SAMBýLISKOnUR […] Í SAMA KROPPI, Í SAMA HöFðI, Í SAMA BLóðI“
43
„nauðgun“, „kynferðislegt ofbeldi“ og „kynferðisleg áreitni“ urðu mun
algengari í dagblöðum og tímaritum en fyrr.3 Frekara umtal leiddi til að
gerða en á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars árið 1989 héldu
íslenskar konur frá fjölmörgum kvennasamtökum og félögum baráttufund í
Hlaðvarpanum.4 Þar greindu þær frá starfi sínu, helguðu daginn baráttunni
gegn kynferðisofbeldi á Íslandi og ákváðu að stofna Samtök kvenna gegn
kynferðisofbeldi. Fyrsta verkefni nýstofnuðu samtakanna var að koma á fót
ráðgjafar– og upplýsingamiðstöð fyrir konur og börn sem höfðu verið beitt
kynferðisofbeldi. Ári síðar höfðu fengist fjárframlög frá ríkinu sem varð til
þess að á eins árs afmæli samtakanna, 8. mars 1990, hófu Stígamót, gras
rótarsamtök gegn kynferðisofbeldi, starfsemi sína.5
Bókmenntir hafa átt þátt í að vekja athygli á ýmsum kimum mannlífsins,
efla umræðu, auka skilning lesenda svo ekki sé minnst á að þær geta og hafa
haft bein áhrif á samfélagsatburði. Síðasta aldarfjórðunginn eða svo hefur
orðið augljós sprenging á Íslandi í útgáfu á skáldsögum og ævisögum/lífs
reynslusögum sem fjalla um kynferðisofbeldi og segja frá hvernig þolendur
hafa unnið úr reynslu sinni. Skáldsagan Ég heiti Ísbjörg. Ég er ljón eftir Vigdísi
Grímsdóttur er í hópi slíkra sagna. Hún kom út haustið 1989 og er því meðal
allra fyrstu bóka íslenskra sem fjalla á afar opinskáan hátt um kynferðislegt
ofbeldi en þar segir meðal annars frá nauðgun á barni, sifjaspellum og vændi.
Vegna þess hve umræðan var tekin að opnast um ofbeldi af þessu tagi var
viðbúið að bók Vigdísar yrði tekið fagnandi af tilteknum hópi lesenda. Sú
varð líka raunin. Sagan var í hópi söluhæstu jólabóka ársins,6 var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut síðar Menningarverðlaun DV.
Hún fékk einnig að mestu leyti jákvæða dóma hjá gagnrýnendum dagblaða
og tímarita.7 Til marks um vinsældir bókarinnar má einnig nefna að þremur
árum eftir útkomu hennar var leikgerð eftir henni sett á svið í Þjóðleik
3 Eins og sjá má ef slegin eru inn leitarorðin ,nauðgun‘, ,kynferðislegt ofbeldi‘ og
,kynferðisleg áreitni‘ á timarit.is stóreykst tíðni orðanna á níunda áratugnum. Sjá
Timarit.is, sótt 15. febrúar 2019.
4 „Stofnun Stígamóta“, Stígamót, sótt 16. apríl 2019 af https://www.stigamot.is/is/um-
stigamot/saga-stigamota.
5 Sama heimild.
6 Sjá t.d. „Metsölulisti Eymundssonar“ sem birtist í Morgunblaðinu 22. desember
1989, bls. 4, en þar prýðir Ég heiti Ísbjörg. Ég er ljón annað sætið.
7 Sbr. María Anna Þorsteinsdóttir, „nornarspegill“, Tíminn, 13. desember 1989, bls.
9; Gísli Sigurðsson, „Ein er upp til fjalla“, DV, 7. desember 1989, bls. 90; Silja
Aðalsteinsdóttir, „En þú Ísbjörg, hafðir þú ástæðu?“, Tímarit Máls og menningar, 52:
1/1990, bls. 106–108, hér bls. 106.