Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 39
GUðRÚn STEInÞóRSDóTTIR
52
hefur þau áhrif að þolandinn sér bæði sjálfan sig og heiminn í nýju ljósi og
þarf að endurbyggja heiminn að nýju til að geta fellt hann að reynslu sinni.
Tíminn leiðir í ljós hvernig heilinn vinnur úr trámatengdum upplýsingum
en í grófum dráttum er reynslan annað hvort geymd í minninu sem óheppi
legur atburður úr fortíðinni eða skynjunin og tilfinningarnar sem tilheyra
atburðinum fara að lifa sjálfstæðu lífi. Flestir sem hafa upplifað tráma eru
á einn eða annan hátt hæfir til að halda lífinu áfram án þess að láta minn
ingarnar af trámanu ná tökum á sér. Það merkir þó ekki að trámatísku at
burðirnir hafi engin áhrif á þá því eftir að hafa upplifað tráma verða allflestir
uppteknir af atburðinum og algengt er að þeir finni hvað eftir annað fyrir
ágengum minningum um hann. Þessi endurtekning á ósjálfráðum minning
um er eðlileg aðferð til að bregðast við skelfilegri reynslu og í sömu mund
leið til að umbreyta tilfinningum tengdum trámanu og umbera minningar
um það. Ágengni minninganna getur tekið á sig mörg ólík form, þær geta til
dæmis falið í sér tíð endurlit, sterkar tilfinningar eins og kvíða og reiði, ýmis
líkamleg einkenni, martraðir og svefnleysi. Þeir sem tekst ekki að leggja
skilning í trámað þróa með sér áfallastreituröskun en munurinn á þeim og
öðrum er sá að þeir byrja að skipuleggja líf sitt í kringum trámað auk þess
sem þeir upplifa ýmis einkenni röskunarinnar.35
Í viðtölum sálfræðinga við sjúklinga hefur komið í ljós að þó að menn
leiti sér gjarnan hjálpar vegna ákveðins trámatísks atburðar hafa þeir upp
lifað ýmiss konar tráma í gegnum ævina og þjáðst af ýmsum sálfræðilegum
vandamálum þeim tengdum en aðeins sum þeirra eru talin vera einkenni
áfallastreituröskunar. Meðal þessara annarra einkenna eru árásarhneigð
gagnvart sjálfum sér og öðrum, minnistap, þunglyndi, skömm, sjálfshatur,
tortryggni og ýmsir líkamlegir kvillar. Bessel A. van der Kolk hefur bent
á að annað hvort sé hægt að flokka þessi einkenni sem hliðarverkun áfalla
streituröskunar eða að þau séu hluti af vandamálum tengdum trámanu.36
Í Dísusögu má ekki sjá megineinkenni áfallastreituröskunar en engu að
síður er ljóst að nauðgunin sem Dísa verður fyrir er trámatískur atburður í
35 Sama heimild bls. 5–15.
36 Bessel A. van der Kolk, „Posttraumatic stress disorder and the nature of trauma“, bls.
9. Mikið hefur verið skrifað um tráma og bókmenntir en sem dæmi um frumkvöðul
á því sviði má nefna Cathy Caruth. Hún hefur til dæmis skrifað bækurnar Unclaimed
Experience: Trauma, Narrative and History (1996) og Listening to Trauma: Conversations
with Leaders in the Theory and Treatment of Catastrophic Experience (2014) auk þess
sem hún ritstýrði greinasafninu Trauma: Explorations in Memory (1995).