Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 96
„HANN ER BARA Á VONDuM STAð“
109
myndum.20 Ýmsir gagnrýnendur hafa sérstaklega hælt Erlingi fyrir að skrifa
um ástarsamband homma í Rökkri án þess að gera sjálfa kynhneigð þeirra að
sérstöku umtalsefni. Stephen Faber hjá Hollywood Reporter segir til dæmis að
„einn frumlegasti og forvitnilegasti þátturinn í kvikmynd [Erlings sé] sá að
hann skrifi um samkynhneigðar persónur án þess að beina sjónum sérstak-
lega að félagslegum vandamálum eða kynhneigðinni sem þema“21 og Alex
Lines hjá Film Inquiry segir að um sé að ræða stórt skref fram á við í hinseg-
inkvikmyndum þar sem eitt af því besta við myndina sé að kynhneigð parsins
sé eðlilegur hluti af frásögninni í stað þess að vera þungamiðja hennar.22 Það
er vissulega rétt að myndin sýnir samkynja ástarsamband sem er ekki litið
hornauga í samfélaginu, en þó má ekki gleyma því að Rökkur fjallar fyrst og
fremst um samfélagsleg vandamál sem tengjast kynhneigð aðalpersónanna.
Mennirnir eru reknir inn í aðstæður sem er ekki jafn algengt að gagnkyn-
hneigðir jafnaldrar þeirra lendi í, til dæmis vegna þess að þeir — að minnsta
kosti annar þeirra — halda kynhneigðinni leyndri fyrst um sinn og þurfa
því að leita sér upplýsinga utan tengslanetsins á unglingsárum. Persónur
myndarinnar lenda í kynferðislegri misnotkun sem þeir tala ekki um og fá
því ekki aðstoð við að vinna úr. Því má segja að Erlingur taki skref fram á við
með því að sýna samband samkynhneigðra án þess að frásögnin hverfist um
kynhneigð parsins, en einnig með því að beina sjónum sérstaklega að þeim
hættum sem kunna að steðja að ungum hommum, en hann gerir það á for-
sendum hrollvekjugreinarinnar.
Hinsegin kynverund hefur verið eitt af viðfangsefnum hrollvekjunnar
um aldabil en í árdaga gotneskrar hefðar var hún oftast falin undir yfir-
borðinu.23 Bókmenntafræðingurinn Paulina Palmer er ein þeirra sem hefur
skrifað um sameiginleg einkenni gotneskrar hefðar og hinseginleika. Í um-
ræðu um skáldsöguna The Daylight Gate eftir Jeanette Winterson bendir
hún á að bæði hugtökin, gotneska og hinseginleiki feli í sér spennu á milli
fantasíu og raunsæis; hin ókennilega vídd tilverunnar og efnisheimsins veki
20 David Wilson, „Exclusive Interview: Child Eater Creator Erlingur Óttar
Thoroddsen Talks His New Feature Rift (Rökkur)“, sótt 19. maí 2019 af https://rue-
morgue.com/exclusive-interview-child-eater-creator-erlingur-ottar-thoroddsen-
talks-his-new-feature-rift-rokkur/.
21 Stephen Faber, „Rift: Film Review. Outfest 2017“, The Hollywood Reporter, sótt 7.
mars 2019 af https://www.hollywoodreporter.com/review/rift-review-1020261.
22 Alex Lines, „Rift, Strangers by the Mountain“, Film Inquiry, sótt 7. mars 2019 af
https://www.filminquiry.com/rift-2017-review/.
23 Hér verður einkum litið til umfjöllunar um samkynhneigða karla, sem tekur til
aðalpersónanna í kvikmynd Erlings og vandamálanna sem þeir standa frammi fyrir.