Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 101
SIGRÚN MARGRéT GuðMuNDSDÓTTIR
114
tugt. Rosa sjarmerandi. Hann var alltaf að segja mér að það myndi
allt verða betra þegar ég kæmi út úr skápnum. Að við hefðum allir
gengið í gengum það sama. […] Hann var bara næs. Sjúklega fynd-
inn og sætur. Hann sendi mér myndir. Svo bað hann um að hitta
mig. […] Svo var ég bara allt í einu kominn. Bankaði á hurðina og
hann kom til dyra, en ég tók eftir því að þetta var einhvern veginn
ekki hann. ég þekkti hann alveg af myndunum. Hann var bara tíu
árum eldri, töluvert þyngri […] ég fór ekki. ég var svo spenntur.
ég var náttúrulega líka graður. Svo þegar ég kom inn sá ég að vinur
hans var líka í sófanum. […] Er þér sama þó að við gerum smá
myndband, sagði gaurinn af IRC-inu. […] Það sem þeir gerðu svo
við mig. ég hélt bara að fólk gerði ekki svona.42
Það er erfitt að lifa með því að vera skrímsli, enda eru þau klók í að finna
réttlætingu fyrir níðingsverkunum. Mennirnir sem nauðguðu Gunnari
muna atburðina til dæmis „aðeins öðruvísi“ en hann lýsir þeim.43 Á sama
hátt veit Jack Torrance í skáldsögu Stephens Kings að „þegar hann er með
sjálfum sér fyrirfinnst ekki fínni náungi í öllu Vermont-fylki. Þau hljóta að
vita það.“ Þetta hugsar hann á meðan George Hathfield liggur í blóði sínu
á bílastæðinu við Stovington-skóla.44 Lýsing Gunnars á ofbeldinu sem hann
var beittur er auk þess „skýrt dæmi um harmþrungin fyrstu kynni samkyn-
hneigðra manna af kynlífi, þegar þeir eru ekki alveg komnir „út““, segir
gagnrýnandinn Matt Donato.45 Níðingarnir eru skrímslin sem húka við
skápinn og reyna að þröngva sér inn, eða hremma þá sem eru að fikra sig
út. Þessu er miðlað í myndmáli Rökkurs þegar Gunnar felur sig inni í lítilli
geymslu á stærð við skáp í gamalli byggingu á Gufuskálum, þar sem Einar
ólst upp og mætti örlögum sínum. Morðingi Einars sniglast um í grennd við
skápinn; Gunnar nær ekki að loka honum alveg, og fylgist því með því sem
fram fer í gegnum örmjóa glufu. Sjónarhorninu er svipt ört á milli þess ytra
og hins innra, áhorfendur sjá glufuna og vita að Gunnar dylst handan hennar
og frá sjónarhóli hans greina þeir misindismanninn á vappi fyrir utan. Þegar
42 Erlingur Óttar Thoroddsen, Rökkur.
43 Erlingur Óttar Thoroddsen, Rökkur.
44 Stephen King, The Shining, bls. 166. Tilvitnunin er þannig á ensku: „when he was
himself there wasn’t a nicer guy in the whole state of Vermont. Surely they knew
that.“
45 Matt Donato, „Rift Review. Fantastic Fest 2017“, We Got this Covered, sótt 19. mars
2019 af https://wegotthiscovered.com/movies/rift-review-fantastic-fest-2017/. Rift
Review [Fantastic Fest 2017.]