Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 103
SIGRÚN MARGRéT GuðMuNDSDÓTTIR
116
skrímslið gýtur öðru auganu inn í gegnum smuguna og sér unga manninn
leggst það á hurðina og reynir að þvinga hana upp með valdi.46 Húsið er
yfirgefið og einangrað, engin von er til þess að nokkur heyri í Gunnari og
því vonlaust að hrópa á hjálp.47 En það ýtir undir að menn hugsi um að vald
ofbeldismanns yfir samkynhneigðum körlum er ekki síst fólgið í þögninni
um kynferðisbrot hans.
Félagsfræðingurinn Aliraza Javaid fjallar um þögn samkynhneigðra karla
sem verða fyrir kynferðisofbeldi, sem og þöggun samfélagsins í greininni
„In the shadows: Making sense of gay male rape victims’ silence, suffer-
ing and invisibility“ frá árinu 2017. Hann segir sérstaklega lítið hafa farið
fyrir rannsóknum á ofbeldi gagnvart samkynhneigðum körlum þrátt fyrir
að ýmislegt bendi til þess að hátt hlutfall karla sem verði fyrir nauðgun séu
samkynhneigðir.48 Þótt kynhneigðin virðist áhættuþáttur skorti rannsóknir
til að auka skilning og minnka fordóma.49 Samkynhneigðir karlar sem verða
46 Atriðið kann að minna á innlit í annarri kvikmynd þar sem gamalt skrímsli reynir að
þröngva sér inn í lítið rými — felustað fórnarlamba sinna. Atriðið er í kvikmyndinni
Jurassic Park (1993, Steven Spielberg). Lexie situr inni í bíl skemmtigarðsins ásamt
samferðarmönnum og reynir að vera grafkyrr til að forðast að grameðlan sem
gengur laus fyrir utan verði þeirra vör. Þegar risaeðlan lítur inn í bílinn í gegnum
afturrúðuna lýsir vasaljós Lexie upp auga hennar sem er í forgrunni rétt eins og
auga gamla karlsins í reimleikahúsinu á Vesturlandi. Risaeðlurnar eru afsprengi
tækniþróunar, sem er einnig hreyfiafl skrímslanna í Rökkri. Að því verður vikið síðar
í greininni.
47 Hér er rétt að benda á að það er afturganga Einars sem leiðir Gunnar inn í húsið,
eins og til að sýna honum hvað gerðist þar. Myndin byggir á endurtekningum þegar
Gunnar fetar slóðir Einars og kemst smám saman að því hvað kom fyrir hann. Því
má draga þá ályktun að Gunnar upplifi atvik sem henti Einar fyrr. Þó að Gunnar segi
manninum að hætta má líta svo á að í tilfelli Einars hafi það ekki dugað til.
48 Aliraza Javaid, „In the Shadows: Making sense of gay male rape victims’ silence,
suffering and invisibility“, International Journal of Sexual Health, bls. 279–291, hér
bls. 279–280.
49 Hér skal tekið fram að gagnkynhneigðir karlar verða sannarlega einnig fyrir
fordómum í tengslum við að segja frá kynferðisofbeldi sem þeir verða fyrir af hendi
annarra karla. Hallgrímur Helgason birti greinina „um hinn sársaukandi sársauka:
eða Persónur leiða höfund sinn til heljar“ í Ritinu 3/2018, bls. 173 –179, hér bls.
177–178. Greinin fjallar um reynslu hans af því að lýsa raunverulegri nauðgun
sem hann varð fyrir, en það gerði hann í bókinni Sjóveikur í München. Hann lýsir
viðbrögðum eldri karla sem fannst hann hafa gert mistök með því að „afhjúpa
sína veikustu bletti“; geðlæknir kallaði hann „aumingja vikunnar“ í blaðapistli og
þekktur rithöfundur sagði í útvarpsviðtali: „hvaða kynvillingur hefur haft svona
slæman smekk“. Þá má nefna að heimilisofbeldi meðal hinsegin fólks virðist vera
falið vandamál samkvæmt skýrslu sem kom út árið 2018. Þar kemur meðal annars í
ljós að hinsegin fólk rekur sig á fordóma sem byggjast á ranghugmyndum og þöggun