Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Síða 111
SIGRÚN MARGRéT GuðMuNDSDÓTTIR
124
ingarhvöt fórnarlamba sinna.76 Stephen King ræðir slík hús með athyglis-
verðum hætti, að hans hyggju eru „draugahús […] dulræn batterí sem gleypa
í sig geðshræringarnar sem eru framleiddar í þeim, líkt og rafgeymir í bíl
geymir rafhleðslu“.77 Reimleikahús eru illgjörn og gráðug fyrirbæri sem lesa
íbúana eins og opna bók og þekkja upp á hár helstu veikleika þeirra og mis-
nota þá miskunnarlaust sér í vil. um er að ræða risastóra heila sem minna á
einstaklinga með alvarlega siðblindu.78 Þessi hús háma í sig neikvæðar geðs-
hræringar þeirra sem voga sér inn.79 Hleðslan er svo orkan sem knýr þau,
líkt og rafhleðsla bíl — eða persónuupplýsingar samfélagsmiðla. Heilinn
er líka eins og lítil rafstöð sem er hér um bil kíló á þyngd og framleiðir raf-
magn sem flæðir eftir leiðslum gerðum úr taugafrumum á áfangastaði um
allan kroppinn.80
Rannsóknir benda til þess að vanlíðan geti aukist eftir því sem fólk eyðir
meiri tíma á samfélagsmiðlum.81 Þeir geta valdið þunglyndi, lélegu sjálfsmati
76 Thomas D. Parson, (Cyberpsychology and the Brain: The Interaction of Neuroscience
and Affective Computing, bls. 37) ræðir um að aukning verði á dópamínframleiðslu
notenda Facebook þegar þeir fá „læk“. Sjá einnig t.d. E. Kross o. fl., „Facebook use
Predicts Declines in Subjective Well-Being in Young Adults“, PLoS ONE 8: 8/2013,
sótt 18. mars 2019 af doi:10.1371/journal.pone.0069841.
77 Stephen King, Danse Macabre, bls. 264.
78 Stanley Kubrick gerir þessum líkindum skil í kvikmyndaaðlöguninni á The Shining
(1980) þar sem myndmál er gjarnan sótt til heilans.
79 Stephen King, Danse Macabre, bls. 265. Þess má geta að heilinn er orkufrekt
reimleikahús. Hann er tæplega eitt og hálft kíló af gráum massa (nokkurn veginn
sömu þyngdar og þrettán-tommu MacBook Pro tölva frá Apple). Heilinn á
rafmagnsframleiðsluna einnig sameiginlega með reimleikahúsum, hann dælir
orkunni sem hann sýgur í sig út í gegnum leiðslur, nánar til tekið taugafrumur sem
flytja hana á áfangastað. Þess ber þó að geta að heilinn er ekkert sérstaklega öflug
rafstöð, orkan sem hann framleiðir dugar til að mynda til að tendra eina ljósaperu
sem þarf lágan straum.
80 Hér má hafa í huga að önnur merking orðsins sími er ,leiðsla‘ eða ,þráður‘. Orðið
felur í sér að fyrirbærið getur flutt eitthvað frá upprunastað til endastaðar. Einnig
má nefna að myndmál sem lýsir starfsemi heilans er oft nátengt tækniþróun
iðnbyltingarinnar. Jón Ólafsson virðist t.d. hafa þekkt til áðurnefndra uppgötvana
Lodge þegar hann skrifar um „firðritun (telegraphy) án síma“, sem hann notar til
rökstuðnings á flutningi taugaboða á milli líkama. Hann lýsir heilastarfi á þennan
veg í lok 19. aldar: „Heilinn sendir þannig með rafmagni símrit til fjarlægra parta
líkamans, og leiðararnir, sem flytja rafmagnið — símarnir, sem flytja orðsendingarnar
— eru taugarnar“ [skál. mín]. Jón Ólafsson, „Ritstjóraspjall“, Nýja öldin 1/1899, bls.
70 –72, hér bls. 71.
81 Hér má geta þess að Drakúla greifi biður Jonathan Harker um að skilja svolítið af
hamingju sinni eftir innandyra þegar hann býður honum að stíga inn í kastala sinn.