Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 116
„HANN ER BARA Á VONDuM STAð“
129
inu.93 Enda á Gunnar nýjan kærasta sem er húðflúraður með póstnúmerinu
101 og Einar flúði í borgina eftir að hafa týnst í hrauninu í sveitinni. „ég
var alltaf svo hræddur við þetta hraun þegar ég var lítill. Þetta var algjör
martröð fyrir krakka. Við kölluðum þetta Mannshvarfshraun“, segir hann.
Netheimar eru í ákveðnum skilningi óbyggðir samtímans þar sem homminn
er í bráðri lífshættu, að minnsta kosti ef marka má reynslu ungu mannanna í
Rökkri þar sem Einar liggur dauður ofan í hraungjótu af völdum gamla perr-
ans, Grétars. Þess má geta að enskur titill myndarinnar er Rift og er dreginn
af gjótunni í jörðinni. Auk þess getur rofið átt við um stöðu þeirra Einars og
Gunnars í tilverunni. Það skapast fjarlægð á milli fyrrverandi kærustupara
við sambandsslit og sprungan verður ansi breið ef annar aðilinn er draugur
— nema ef tækninnar nýtur við.
Gunnar er oft með tæki í hönd, ýmist síma, upptökuvél eða tölvu, sem
eru í flestum tilfellum í eigu Einars.94 Þegar Einar kemst að því að Gunn-
ar hefur verið að hnýsast í símann hans og fundið skilaboð frá manninum
sem hann var að spjalla við á stefnumótaforritinu sem getið var, segir hann:
„[h]ver gaf þér leyfi til að skoða símann minn. Hefur þú heyrt um friðhelgi
einkalífsins?“95 Mótmælin verða fremur írónísk í ljósi þess hversu ótrygg
leyndarmál manna eru í hvelfingum snjalltækjanna. Síminn er jafnframt eins
og piparkökuhúsið sem krækti í Hans og Grétu, girnilegur en hættulegur
– það sama gildir um úrvalið sem er í boði – eða með orðum Gunnars: „Þið
notið þessi forrit eins og þið fáið borgað fyrir það. Vaðandi um í nammibúð-
inni“.96 Líkt og nornin notar piparkökuhúsið til að lokka til sín fórnarlömb
geta níðingar falið sig í úrvalinu sem Gunnar vísar til á netinu og notfært sér
sem veiðarfæri. Jimmy Safechuck og Wade Robson lýsa því til dæmis nokk-
uð nákvæmlega í Leaving Neverland hvernig Michael Jackson nálgaðist þá
þegar þeir voru börn og undirbjó fyrir misnotkunina sem virðist hafa staðið
93 Catriona Mortimer-Sandilands og Bruce Erickson, „Introduction: A Geneaology
of Queer Ecologies“, Queer Ecologies, Sex, Nature, Politics, Desire, ritstj. Catriona
Mortimer-Sandilands og Bruce Erickson, Indiana: Indiana university Press, 2010,
bls. 3–4.
94 Það er rétt að geta þess að kvikmyndagerðarfólk hefur verið að færa reimleikahúsið
inn á netið og í samskiptamiðla síðustu ár, t.d. má nefna Unfriended (Levan Gabriadze,
2014,) þar sem hópur fólks sem stundar sama spjallþráðinn er ásótt; í kvikmyndinni
Unfriended: The Dark Web (Stephen Susco, 2018) fylgir andi látins eiganda gamalli
tölvu og í Selfie from Hell (2017, Tyler A. H. Smith), soga undirheimar netsins (e.
dark web) ungar stúlkur í sig.
95 Erlingur Óttar Thoroddsen, Rökkur.
96 Sama heimild.