Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2019, Page 157
DAGný KRISTJÁnSDóTTIR
170
Í bókinni skoðar Favazza tengingar milli sjálfsskaða, helgisiða og hug-
mynda annarra menningarheima um heilun og lækningar. Hann átti drjúgan
þátt í að snúa við þeim útbreiddu hugmyndum meðal geðlækna að sjálfs-
meiðingar væru oftast eða alltaf einhvers konar undanfari sjálfsvígs. Með
tengingum sínum við helgisiði og heilun komst hann að þeirri niðurstöðu að
þær hrjáðu manneskjur sem skaða sjálfar sig væru að bjarga lífi sínu en ekki
hið gagnstæða. Að þessu verður nánar komið síðar.
Gríðarmikið hefur verið skrifað um þetta fyrirbæri síðan. Útbreiðsla og
tíðni sjálfsskaða í dag, einkum meðal ungs fólks, vekur ugg og ótta hjá þeim
sem láta sig velferð þess varða. Í greininni hér á eftir verður fjallað um sjálfs-
skaða, einkum hjá því fólki sem sker sig til blóðs. Spurt verður um orsakir,
einkenni og birtingarmyndir hans.
Hvað er sjálfsskaði?
Alþjóðlega fræðiheitið á sjálfsskaða er „non-Suicidal Self-Injury“, skamm-
stafað „nSSI“. Skilgreining The International Society for the Study of
Self-Injury (ISSS) á sjálfssköðum hljóðar svo: „Sjálfsskaðar beinast ekki að
sjálfsmorði en eru skilgreindir sem vísvitandi skemmdir á vefjum líkamans,
framkvæmdar af einstaklingnum sjálfum að eigin ósk án þess að hafa sjálfsmorð
í huga og með markmið sem ekki eru félagslega eða menningarlega samþykkt.3
Eins og sjá má tekur skilgreining þessi af allan vafa um að meiðslin séu af
völdum utanaðkomandi árásar. Einstaklingurinn ráðist á sjálfan sig. Ofbeldi
er alla jafna félagslega fordæmt. Þegar fólk ræðst gegn sjálfu sér og líkama
sínum af ásetningi er það bæði gerendur og þolendur misþyrminganna og
það er óskiljanlegt flestum. Við gerum yfirleitt allt sem í okkar valdi stendur
til að forðast sársauka. Og þeir sem skaða sig á þennan hátt eru ekki stöku
furðufuglar.
Hverjir skaða sig?
Sjálfsskaðar eru útbreiddir og allt bendir til að þeim sem skera sig endurtekið
hafi fjölgað mjög hratt síðustu árin. Það getur þó verið erfitt að fullyrða um
Culture and Psychiatry, önnur útgáfa, Baltimore: John Hopkins University Press,
1996, bls. xv.
3 „The International Society for the Study of Self-Injury defines non-suicidal
self-injury as the deliberate, self-inflicted damage of body tissue without suicidal intent and
for purposes not socially or culturally sanctioned.“ What is nonsuicidal self-injury?, The
International Society for the Study of Self-Injury, sótt 4. apríl 2019 af https://itriples.
org/about-self-injury/what-is-self-injury.