Úrval - 01.01.1964, Síða 84
90
ÚR VAL
fór hann í þriggja vikna ferð
til Afríku. Þegar hann kom heim
þaðan, skýrði hann Jóhannesi
páfa frá vandamálum kirkjunn-
ar þar.
Jóhannes páfi bar heill Mon-
tinis innilega fyrir brjósti. Sagt
er, að Montini hafi átt hönd i
bagga með að semja ræðu páfa
við opnun Vatikansráðsins.
Hann var einn af fáum kardí-
nálum utan Rómar, sem fékk til
umráða viðhafnarherbergi i
Vatikaninu á fyrsta þingtíma-
bilinu. Hann var einnig beðinn
um að sjá um páfamessu í til-
efni fjögurra ára starfsafmælis
Jóhannesar í páfastól, og hann
fylgdi bróður og systur Jóhann-
esar páfa að sjúkrabeði hans,
er hann lá banaleguna.
Stuttu eftir páfakjör tilkynnti
Páll VI., að hann myndi reyna
að fara að dæmi þriggja síð-
ustu fyrirrennara sinna, „Pius-
ar XI. sakir viljastyrks hans,
Píusar XII. sakir þekkingar hans
og vizku, Jóhannesar XXIII. sak-
ir hinnar takmarkalausu mann-
gæzku hans.“ „Það leikur eng'-
inn vafi á því, að liann vildi
af heilum hug fylgja stefnu Jó-
hannesar.
í fyrstu opinberu ræðu sinni,
sem haldin var á latínu framini
fyrir kardinálum i Sikstinsku
kapellunni, lýsti Páll páfi því
yfir, að hann myndi vinna að
því að fullvinna hið mikla
kirkjulega verkefni, sem Jóh-
annes hafði fyrstur tekið að
vinna að: Vatíkanráðið og end-
urskoðun kirkjuréttar; að hann
myndi „stefna að eflingu rétt-
iælíis meðal manna, borgara,
þjóðfélaga og þjóða um heim
allan, samkvæmt því fordæmi,
sem skráð er í hinum miklu
þjóðfélagslegu umburðarbréfum
fyrirrennara okkar.“
Páll VI. hét því að halda á-
fram því starfi, sem Jóhannes
hafði unnið svo ötullega að, en
það var eining kristinna manna,
og hann vildi einnig berjast
fyrir friði •— „friði, sem er
ekki aðeins lát á erjum og hern-
aði, heldur heimsmynd í anda
drottins, skapandi, sterk löng-
un til þess að skilja og lifa sam-
an i bróðerni, sleitulaus við-
leitni i þá átt að vinna að sam-
lyndi meðal manna, innblásin
af umhugsun um sanna velferð
mannkynsins.“
Af orðum páfans og dáðum
var ljóst, að hann hafði apertur-
ismo til að bera — sannan
skilning á heiminum og ein-
lægni gagnvart mönnum. En
aperturismo Páls var ekkert
líkur aperturismo Jóhannesar.
Angelo Roncalli var hlýr og hug-
sýnn maður, sem elskaði menn-
ina fremur en hugmyndirnar.
„Nýi páfinn,“ segir spánskur