Úrval - 01.01.1964, Síða 86
/ Fvakklandi eru nt/lega hafnar stórfelldar
framkuæmdir, er gefa miinu börnum, van-
sköpuðum af völdum thalidomidelyfja og
öðrum orsökum, bjartari vonir um framtið-
ina, er virzt hefur svo dapurleg. Ætti þetta
framtak að geta orðið öðrum þjóðum hvatn-
Hjálparstarf fyrir vansköpuð börn
ing. Og driffjöðrin að baki framkvæmdum
þessum, er hlotið hafa nafnið „VONIN“, er
furðuleg kona, er fæddist handleggja- og
fótalaus, en er nú þekktur málari í Frakk-
landi.
Eftir Ollie Stewart.
M tuttugu af launa-
hæstu listamönnum
og' útvarps-, sjón-
varps-, leikhúss- og
kvikmyndastjörnum
Evrópu unnu að því dagana 7.
til 9. desember í fyrravetur, að
safna peningum á götum Parísar-
borgar.
Fólk þetta fór um í sex stór-
um strætisvögnum, sem skreyttir
voru risastórum auglýsinga-
spjöldum, og öllu var þessu út-
varpað og sjónvarpað. Bílarnir
nánni staðar, þar sem fólk var
á ferli, og út stigu listamenn
svo sem Salvador Dali, Serge
Lifar, Luis Mariano, Gilbert
Becaud, Simone Renant og Clau-
de Nougaro. Aðrir listamenn
skruppu í stórri þyrlu til næstu
borga, Rouen, Rheims, Amiens
og annarra.
Fólk þetta var ekki að gefa
fólki eiginhandarundirskriftir.
Það mátti hreinlega ekki vera
að því, en i stað þess hristi
það litlu körfurnar, sem það bar.
1 návist slíkra fyrirmenna hik-
uðu fáir við að setja smápen-
inga, seðla og ávísanir i körf-
urnar.
92
Catholic Dig. —