Úrval - 01.01.1964, Síða 99
2000 e. Kr.
rennur upp eftir 36 ár
Nú eru aöeins 36 ár til aldamótanna,
en þá veröa liönar tvcer árþúsundir
frá fæöingu Krists. Börn, sem nú eru
aö fæöast, veröa þá í blóma lífsins.
Hvernig veröur umhorfs í heiminum
á því herrans ári? Ýmsir vísindamenn
álíta ártal þetta ógnvœnlega nærri,
er þeir fylgjast óttaslegnir meö hinni
ört fjölgandi íbúatölu jaröarinnar.
Eftir Lord Fleck.
AMKVÆMT útreikn-
ingum sérfræðing'a,
hefur íbúatala jarð-
arinnar tvðfaldast ár-
ið 2000, miðað við
það, sem hún er í dag. Þeir
teljast nú þrjú þúsund milljón-
ir, verða orðnir sex þúsund
milljónir þá. Nú sem stendui
verjum við of fjár til að afhjúpa
leyndardóma himingeimsins, á
meðan helmingur alls mann
kyns sveltur hálfu hungri. Eða,
eins og það er orðað í opin-
berum skýrslum: „Um það bil
1,500 milljónir manna verða að
láta sér nægja viðurværi, sem
hvorki að magni né gæðum
tryggir fulla heilbrigði, vöxt og
viðgang eða starfsþrótt.“
Fæðuskorturinn, undirrót og
fylgifiskur mannlegrar eymdar
og ráðþrota, hefur það meðal
annars í för með sér, að mikill
hluti Asíumanna er dæmdur til
dauða á fertugsaldri sökum ó-
nógrar fæðu alla ævi, og hafa
þó aldrei lifað fullu lifi, af sömu
orsökum.
Fæðuskorturinn veldur því, að
afríkanskar mæður verða að
horfa upp á það, að börn þeirra
— Engl. Dig.
105