Úrval - 01.01.1964, Side 163
1G9
HALLÓ, ÁSTIN MÍN!
en hún kom heim aftur í lok
ágúst.
„Herra Bell.“ sagSi hún hik-
andi. „Mér ... mér geðjast í
raun og veru . .. alls .. . alls ekki
illa að yður! Mér geðjast ein-
mitt . . . einmitt. .. vel að yð-
ur! Jæja . .. er þetta nóg?“
Það var nóg til þess að róa
hann og koma honum nokkurn
veginn i jafnvægi. Og nokkrum
dögum siðar fékk Jiann bréf,
sem hlýtur að hafa glatt hann
mjög.
í hréfi þessu skrifaði frú
Hubbard meðal annars á þessa
leið:
„Ég leysi yður algerlega und-
an loforði yðar, án nokkurra
skilmála. Ef yður tekst að vinna
ástir Mabel, naun ég gleðjast
yfir hamingju minnar hjartkæru
dóttur."
HANN GAT EKKI NEITAÐ
BÓN KONU!
Það var herra Hubbard, sem
kom því óvart til leiðar, að nú
varð brátt af trúlofun. Hann
var vonsvikinn og óttasleginn
vegna Jjess, hversu ákaft Alec
vann að liinni fjarstæðukenndu
uppfinningu sinni, talsímatæk-
inu. Tom Watson hafði smíðað
fyrsta taisímatækið í júní. í
nóvember var Jiað samt enn
ekki komiö í notkunarhæft á-
stand, og' Jiá kvað lierra Hubb-
ard upp þann úrskurð um það,
að Alec eyddi allt of miklum
tíma og peningum i þetta leik-
fang sitt.
Honum var ekki vel við, að
dóttir hans giftist óhagsýnum
draumóramanni, og þvi gaf hann
út föðurlega tilskipun. Herra
Bell gat valið: að verða hag-
sýnn maður og viðurkenna, að
talsímakuklið hans væri fjar-
stæða ein, fá einhverjum öðrum
í hendur kennsluna við liáskól-
ann, snúa sér i alvöru að endur-
bótum á ritsímatækinu og' giftast
Mabel. Hinn kosturinn var að
liætta ekki kennslunni, halda á-
fram vinnunni við talsímatækið
og hætta að hugsa um Mabel!
Alec datt hvorki i hug að
hætta við kennsluna, talsímann
né Mabel. Hann svaraði herra
Hubbard í ákveðnu, en kurteis-
iegu bréfi:
Ég viðurkenni, að kennslu-
starf þetta er allt of vélrænt
fgrir minn smekk. En ég mun
alls ekki sleppa þvi, fgrr en
ég finn eitthvað arðvænlegra
(sem .mun regnast erfitt) eða
hef þjálfað aðra til þess að
vinna slík störf.
Skgldi Mabel elska mig
jafn heitt og ég hana, mun
hún ekki hafa á móti neinu
því heiðarlegu starfi, sem ég
legg fgrir mig. Elski hún mig