Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 64
annað líður undir lok. Vér gerum oss ekki vonir um
að þekkja það völundarhús út í yztu æsar. En vér verð-
um að þekkja meginþætti þess á sama hátt og vér gjör-
um þá kröfu til vor, að vita deili á aðallíffærastarfsemi
líkama vors, þó að vér séum ekki læknar.
Tvennt getur komið oss að haldi við slíka athugun:
Sagan og ásigkomulag þess samfélags, sem vér lifum í.
Sá félagsheimur, sem vér lifum i nú, liefst í raun og
veru árið 1914 með styrjöldinni miklu. Hún setur skil-
in á milli þess, sem var og er. Meginviðburðir þeir, sem
síðan hafa gerzt og áhrif hafa á alþjóðlegan mælikvarða,
eru byllingin í Rússlandi 1917, byltingarnar i Mið-Ev-
rópu 1918 og 1919, fasistabyltingin á Ítalíu 1922, þjóð-
ernislireyfingarnar á Indlandi og i Kína, fyrsta og önn-
ur fimm ára áætlun Sovjet-Rússlands, heimskreppan
eftir 1929, Nazista-byltingin í Þýzkalandi 1933, borgara-
styrjöldin í Austurríki 1934, árásarstrið italska fasism-
ans á Abessiníu, fasistauppreistin og borgarastyrjöldin
á Spáni, innrás Japana í Kina og hin liamslausa lier-
væðing um öll lönd.
En livað þýðir þetla allt? Hvaða öfl eru hér að verki ?
Það er gömul og ný skýring vissra manna á öllum fyr-
irbærum, að heimurinn sé orðinn svo spilltur og vit-
laus, að hann sé að líða undir lok. Aðrir ætla að djöfl-
inum hafi skyndilega vaxið ásmegin af dularfullum or-
sökum og gangi nú fram tvíefldur í fordjörfunarverki
sínu. Það er menningar- og skilningsstig prestanna í
Reykjavik. Aðrir kenna um illsku mannanna og eyði-
leggingarfýsn, sem sé í þann veginn að steypa öllu í glöt-
un, vegna þverrandi kverlærdóms og vaxandi viðgangs
verklýðshreyfingarinnar. Þetta eru algengustu svörin.
Nú er bezt að ræða ekki við þá, sem finna skýringar
fyrirbrigðanna í bæxlagangi djöfulsins. Þeir eru yfir-
leitt ekki meðtækilegir fyrir röksemdir, og verður að
leyfa þeim að bíða þess, að hann komi og sæki þá. Þá er
mikið talað um skemmdar- og niðurrifshvöt nútímans.
64