Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 240
Og því fór það svo, sonur minn, að við hötuðum þig frá upp-
hafi. Og meðan ég gekk með þig, sátum við faðir þinn og ég
oftsinnis saman á kvöldin, eftir að systkinin voru sofnuð, og töl-
uðum um það, hvernig við gætum losnað við þig. (Þvi að við
vissum það ekki þá, að þú ættir til svona yndislegt bros).
En við þessu höfðu þeir líka séð, þeir háu herrar, og höfðu
sett ströng lög, seni bönnuðu öllum — eins þótt ekki væru skottu-
læknar — að eyða fóstri móður þinnar, svo að þú, sonur minn,
skyldir ekki fara alls þessa á mis, og þeir sjálfir ef til vill verða
í mannhraki, þegar þeim kynni að detta í hug að starfrækja
verksmiðjur sínar í ný!
Karin Boye er kunnust af yngri skáldkonum Svia. Þrátt fyr-
ir ungan aldur, hefir hún þegar gefið út margar ljóðabækur,
en mun þó vera öllu þekktari fyrir skáldsögur sinar.
Sigurður Thorlacius, skólastjóri, sal alþjóðlegt uppeldismála-
þing í París í sumar. Flutti hann þar erindi á frönsku um helztu
einkenni barnafræðslu og alþýðumenntunar á íslandi. Erindið
birtist í Menntamálum (okt.—des. hefti þ. á.), og hefir enn-
fremur komið út á frönsku. Sigurður gefur hér lesendum Rauðra
penna kost á að kynnast helztu störfum þingsins, en hefir slcrif-
að rækilega um það í Menntamál.
Jón úr Vör hefir átt kvæði í báðum fyrri bindum Rauðra penna.
Hann hefir nýlega gefið út fyrstu ljóðabók sina. Ég ber að dyrum.
Þorvaldur Þórarinsson, lögfræðingur, hefir skrifað nokkrar
ritgerðir i tímarit. Hann var um tima ritstjóri Nýja stúdenta-
blaðsins. Þetta er fyrsta ritgerð hans i Rauðum pennum.
Bertil Malmberg er einn af hinum merkustu ljóðskáldum Svía,
akademiskur i formi, en róttækur i efnis-vali og meðferð, eins
og síðasta bók hans, „Vid Gransen“, ber vitni um.
240