Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 92
að liún afmáir það og upprætir af jörðunni“ (bls.
188). •
En jafnhliða því, sem séra Páll mælir þessum hvössu
ávitunar og eggjunarorðum til þjóðar sinnar, þá lieldur
hann því einnig á lofti, að hann er að flytja alþjóð-
legan boðskap: „Guðs köllun gengur hátöluð yfir heim-
inn, og andlegir stormar gnýja héðan og handan. Sann-
ar lífsliræringar í andans riki láta meir og meir til
sin taka, og það er ekki liugsanlegt, og því síður æski-
legt, að vér getum setið í fullkomnu vari þeirra vinda,
sem hreyfa hjörtun á þessum tímum..........En timinn
liður, ef vér notum ekki almennan köllunartíma, þá
mun verða lengi að híða eftir sérstökum köllunartíma,
Ef vér ekki nú tökum stjórntauma viðburðanna oss í
hendur, þeirra viðburða, er oss við koma, þá mun tím-
inn fljúga fram lijá og viðburðirnir munu bera oss
ofurliði. Og ef vér ekki nú leggjum drög fyrir að sigra
hina dauðu náttúru, þá mun hin dauða náttúra, harð-
indi, örbirgð, óstjórn og ófrelsi bera ægishjálminn yfir
oss“ (bls. 189).
Þannig talaði ungi presturinn, sem heilsaði söfnuði
sínum sumarið 1880. Skýrt og skorinort lagði liann
fram stefnuskrá sins prestlega starfs, og sagði að lok-t
um: „Ég skal síðar meir, bræður mínir, ef guð vill,
útlista þessar hugmyndir betur; en iiér hafið þér stutt
ágrip af því, hvernig ég skil ritninguna og mannlífið,
og hvernig ég muni framvegis þýða livortlveggja“ (bls.
188). Og í 7 ár prédikaði liann eflir þessari stefnu-
skrá, og skulum við nú athuga nánari útlistanir þess-
ara hugmynda í prédikunarstarfi lians.
III. Höfuðdýrgripir guðsríkisins.
Sem beint framhald af aðfararræðunni tökum við
ræðu þá, sem hann flytur um næstsiðustu áramótin,
sem hann lifði. Sú ræða er nánari útlistun guðsríkis-
hugtaksins og sú ræða er skýrust sönnun þess, að ein-
92