Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 217
Ætlað var, að þingið tæki til meðferðar alla lielztu
þætti uppeldis- og skólamála frá menningarlöndum
um heim allan i ljósi nýjustu reynslu og þekkingar.
Hinu yfirgripsmikla viðfangsefni var skipt i 8 flokka:
I. Heimspeki uppeldisins. í þessum flokki var rætt
um uppeldisstefnur, um fyrirkomulag skóla í
einstökum löndum o. fl.
II. Sálfræði í þjónustu uppeldisins.
III. Kennsluaðferðir, t. d. aðferðir við smábarna-
kennslu, ýmsar nýtizku aðferðir við almenna
kennslu, líkamsuppeldi, barnabókasöfn o. s. frv.
IV. Kennaramentun.
V. Þjóðræknisuppeldi og alþjóðleg samvinna.
VI. Ytri aðbúð skóla, t. d. skólabyggingar, heilbrigð-
iseftirlit, kennslutæki, leikvellir, sundlaugar o. fl.
VII. Ný tæki, svo sem útvarp, kvikmyndir, grammó-
fónar.
VIII. Alþýðumenntun.
Mörg erindi voru flutt í bverjum flokki. Leitað var
samvinnu við alla sálarfræðinga, uppeldisfræðinga og
skólamenn um viða veröld, sem ætla mátti að eitthvað
befðu til málanna að leggja á þingi þessu. Var þvi mik-
ið mannval meðal fyrirlesara þingsins og talaði hver
um þau efni, er bonum voru kunnust.
Öll erindi, sem flutt voru á þinginu, verða prentuð
og send til kennarasambanda og áhugamanna um víða
veröld.
Þess er lítt að vænta, að á þingi, sem aðeins stend-
ur í 7 daga, séu gerðar uppgötvanir, fundin ný sann-
indi. Hlutverk slíks þings er miklu fremur bitt, að
útbreiða þekkingu á sannindum, sem þegar eru fund-
in, að gefa mikilvægum nýjungum vængi áhugans til
að fljúga á, land úr landi, og að efla skilning einstak-
linga og þjóða á gildi samvinnu til úrlausnar sameig-
inlegra vandamála.
217