Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 116
Að frádregnum einkennisbúningnum og hinum italska
titli var þetta aðeins venjulegur drengur, og liafði fermzt
árið sem leið. Hann var i meðallagi stór eftir aldri, og
í meðallagi vel gefinn, og ósköp alminlegur drengur,
eins og reyndar allir heilbrigðir drengir á íslandi, og
kunni ekki að þéra, heldur tók alla fyrir jafningja sina,
en vildi um leið gera allt fyrir alla, og gerði allt eins
vel og liann gat, og gerði ósjálfrátt ráð fyrir því sama
af öllum öðrum. Sömuleiðis ef einhver var ósvífinn
við hann, þá var hann náttúrlega strax ósvífinn á móti,
eins og siður er á fslandi, því það er ekki siður á ís-
landi að líta á mannvirðingar sem afsökun og þaðan
af síður einkaleyfi fyrir því að sýna náunganum ósvífni.
Nú er að segja frá ítalska fasistaliernum, sem nýtur
í heimalandi sínu svo mikillar virðingar vegna sinna
skrautlegu og fjörugu einkennisbúninga og aðdáunar-
verðu leiklistarhæfileika. Eins og vonlegt er, langaði
þessa laglegu menn mikið að telja heiminum trú um
að þeir væru hetjur sem gætu farið i strið, og þessu
til sönnunar lögðu þeir af stað með gasvélar til Afríku
liér um árið til þess að framleiða andarteppu hjá nökt-
um svertingjum. En áður en þeir færu í þessa skemmti-
för til svertingja, þá fannst þeim að þeir þyrftu að sýna
heiminum livað þeir ættu fallega einkennisbúninga og
hvað þeir væru laglegir og skemmtilegir menn, svo heim-
urinn skildi betur hve eðlilegt það væri að svona lag-
legir menn fyndu lijá sér köllun til að myrða sverlingja.
Þeir tóku sig upp með flugvélar sinar einn dag og lögðu
af stað fljúgandi í stórum hóp, og völdu sér ýmis merki-
leg lönd, þar sem þeir ætluðu að stiga til jarðar og sýna
einkennisbúningana. fsland var eitt þeirra landa sem
féll þessi hamingja i skaut. Einn góðan veðurdag leriti
heill floti af ítölskum fasistaflugvélum í Vatnagörðum
hjá Reykjavík, og það voru að minnsta kosti tveir ný-
sniðnir einkennisbúningar i liverri flugvél. Gestina bar
hér að landi í júní þegar nóttin er björtust og sóley
116