Búnaðarrit - 01.01.1901, Page 11
9
regn og kulda, og kom sjúkur til Kaupmannahafnar og
lá á 3. viku í sjúkrahúsi. Hann frískaðist þó það, að
hann gat farið til Kristjaníu; var þeirri ferð einkum
heitið til að tala við byggingarfróðasta manninn i Noregi,
Edv. Kolderup, er Sigurður heitinn bjóst við sjerlega
miklu af. Síðau hjelt hann heim í miðjum ágúst.
Staríi hans í Kaupmannahöfn mætti segja að væri
iýst hjer að framan, þar sem hann leggur á ráðin.
Hann var að læra, og kappsfyilri námsmann hefur ís-
land vart átt. Mikið af starfl hans gekk til að spyrja
uppi og afla sjer nauðsynlQgra bóka; hafði lands-
bókasafnið heimilað honum allríflega að taka út í reikn-
ing safnsins eiguleg ný rit í byggingarfræðum. Mest í
dagbókum hans er um bókaútveganir og smágreinar
uppskrifaðar og þýddar úr þeim. Á lausum blöðum er
uppkast að grein, er sýnist ætluð einhverju blaðinu, er
jeg man ekki að hafa lesið á prenti, þar sem hann
byrjar og endar með því, að skora á menn hjer heima,
að eignast nýútkomna danska bók „Hussvainpen, en Vej-
lcdning for Bygningshaandværkere og til Brug i tek-
niske Skoler“ eptir E. Kostrup og 0. Weismann. Jeg
sje í bókaskrá, að kverið kostar bara 1 krónu. 1 löngu
og mjög rækilegu brjefi, sem hann hefur sent á undan
sjer til Kolderups í Kristjaníu talar hann um, hvaða
nauðsyn sje á að fara að gefa út handa íslendiugum
stafróf byggingarfræðinnar.
Það verður sjeð af nótum hans og uppköstum, að
hann hefur verið síritandi og í mannaleitum alstaðar,
þar sem hann gat við fræðslu búizt; hann hefur og
komið á ýmsar verksmiðjur og fengið að sjá allar til-
færur; en gætilega þarf þá þó að fara, sogir hann, því að
kaupmenn ota fram síuum tota. Mjög mikið hefur hann
dregið að sjer af verðlistum og sýnishornum kaupmanna