Búnaðarrit - 01.01.1901, Page 101
99
áður, og með meiri tryggingu fyrir viðhaldinu en síðast.
Staðarbyggðarmýrar heyra 12 jörðum til á Staðarbyggð-
inni, sem allar eru þjóðeign; auk þess á jörðin Kroppur
land í mýruuum, en hún er bóndaeign.
Þegar Staðarbyggðarmýrar verða bættar næst, ætti
um leið og í sambandi við þær að ræsa fram mýrarnar
þar fyrir utan, er heyra Öngulsstöðum til og s. frv.
Staðarbyggðarmýrar og Öngulsstaða-engjar liggja saman,
og hagar þar svo til, að hagkvæmast er að endurbæta
þær í sameiningu. Jarðabótin yrði þá að meiri notum,
og kostnaðurinn mundi þá einnig verða tiltölulega minni.
Það er einnig íieira, er mælir með, að þessu væri þannig
hagað, en eigi skal hjer fjölyrt frekara um það. Jeg
hef að eins viljað benda á þetta til athugunar fyrir þá,
er síðar meir koma til að fjalla um þetta mál.
Þá er jcg var á ferð um Eyjafjörðinn, heimsótti
jeg þá kaupmann Magnús Sigurðsson á Grund, bænda-
öldunginn Jbn Jönsson á Munka-þverá og Jön Jöna-
tansson á Öngulsstöðum. Á Grund er stórmannlega hýst
og vel umgengið. Magnús hefur búið þar í 36 ár;
byrjaði með lítil efni, en er nú orðiun vel efnaður.
Hann hefur bætt jörðina mikið, aukið töðuaflann úr 200
hesta upp í 500 hesta. Engjarnar hefur hann einnig
bætt; fær hann nú af þeim helmingi meira hey, en þeg-
ar hann kom þar. Fjenaðarhús eru flest nýgjörð og
vönduð, þar á meðal fjárhús, tvístætt, er kostaði 1100
krónur.
Frá Akureyri fór jeg 16. d.ágústm.,og kom til Reykja-
víkur 3. dag septembermánaðar. Á leiðinni kom jeg
við á nokkruin bæjum, sem mjer þykir vert að geta um.
Á Þorkelshóli í Víðidal býr Guðmundur Sigur-
öjartsson og er hann og Sigurður á Lækjamóti beztir
bændur í dalnum. Guðmundur hcfur búið á Þorkels-
7*