Búnaðarrit - 01.01.1901, Page 209
207
þess girt 2 nátthaga og sljettað í þeim 21 /s dagsl., girt
tún silt ineð grjótgarði 337 f., grafið allmikla vörzlu-,
vatnsveitinga- og framræsluskurði, umgirt haugstæði.
Húsagjórð hans er allmikil. Hann hefur komið sjer
upp góðu fjárkyni.
Potta árið voru 10 umsóknir: 2 úr Borgarfjs., 1 úr S.-Múlas.,
2 úr Kangárvs., 2 úr Arnnss. og 3 úr 3vj.- og Gullltrs.
Árið 1900.
51. Cuðmundur Klemensson, bóndi á Ból-
staðarhlíð í Húnavatnssýslu, sjálfseignarbóndi, tók við
jörðinni niðurníddri 1883. Túnið gat' þá af sjer 240
h., nú fulla GOO. Hann hefur aukið túnið um 12 dagsl.
og sljettað 9, reist vandað íbúðarhús úr timbri og hlöð-
ur er taka 600 h. Hann hefur og gjört umbætur á
engi jarðarinnar með fyrirstciðugörðum og vatnsveitinga-
skurðum, gjört stóra og vel uppbyggða safnfor. Mjög
margt. ótalið.
52. þorsteinn Jónsson, hreppstjóri í Vík (Norður-
Vík) í Vestur-Skaptafellssýslu, kom að jörðunni 1884.
Hann hefur sljettað mjög mikið í túninu og stækkað
það um 7—8 dagsl. og girt um. Af byggingum hans
má sjerstaklega nefna hlöðu, er tekur framt að 1000 b.
Ilann hefur eflt mjög sjávarútveg í Vík og átt góðan
þátt í að þar kom upp kaupstaðr •. Á eyðisandi við
sjóinn befur liann ræktað jarðeplagarð með fiskiúr-
gangi.
Þetta árið voru 11 umsóknir: 2 úr Snæfns., 1 úr Dalas.,
1 úr Húuavs., 1 úr Skagafjs., 1 úr V.-Skai>tafs. og 5 úr
Arness.