Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 61
um slóðir. Jú, hét hann ekki Getsamene, olíupressunargarður? Það skipti ekki máli. Þeir slöngruðu tólf saman — hver var það nú aftur sem vantaði? — innan um ilmandi ólívutrén, syngjandi, hlæjandi, spýtandi, blótandi. Jóhannes sagði klúran brandara um tvær systur í Betaníu og dauðan bróður þeirra, og þeir hlógu, allir nema Jakob bróðir hans, sem hafði margsinnis heyrt skrýtluna og geispaði bara, með brauðmylsnu enn í skegginu. Hann stakk upp á að þeir settust niður á einhverjum balan- um þarna; gras var hreinn munaður í þessu grábölvaða örfoka landi. Þeir lögðust niður hver af öðrum; sumir nörtuðu í strá, aðrir geisp- uðu. Vínið var að þrjóta úr krúsinni góðu og Jóhannes, ætíð skapgóð- ur, stakk upp á, að hann þynnti það með vatni úr lindinni örlitlu ofar í hlíðinni. „Ef það væri nú bara hægt að breyta vatni í vín“, rumdi í Andrési, „mundi ég leggja það á mig að klífa þarna upp eftir og baða mig.“ „Ég vil komast aftur á bátinn minn“, tautaði Pétur með heimþrá, augun lukt og sterkir hærðir handleggirnir krosslagðir, „ég vil komast heim, ég hef ekkert að gera hérna í borginni, ég á ekki heima hér.“ „Þið eruð aumkunarverðir“, sagði Jóhannes iðandi af íjöri, sem stakk í stúf við sinnuleysi hinna, og bætti við: „Ég sæki vatn. Komdu með mér.“ Hann hnippti í Jakob bróður sinn. „Pétur hefur meiri þörf á göngunni en ég“, maldaði Jakob önugur í móinn, en stóð þó letilega upp. Pétur rifaði augun. „Varst þú eitthvað að finna að vaxtarlagi mínu?“ rumdi hann illúðlegri bassaröddu. „Ég get hlaupið þig af mér hvenær sem er.“ „Sannaðu það, hlunkur.“ Jakob spyrnti ilskónum vægt til hans, en Pétur þreif snöggt um ökkla hans og felldi hann næstum. Síðan spratt hann furðu fljótur á fætur og skundaði nokkurn spöl. „Hlunkur?“ kallaði hann gáskafullur innan úr rjóðri, „hlunkur? Drattastu sjálfur úr sporunum, letiblóð.“ Jakob og Jóhannes röltu á eftir Pétri og hann horfði á eftir þeim þremur. Skyndilega fann hann hvöt hjá sér til að teygja úr ganglimun- um. Hann reis á fætur. „Bíðið“, kallaði hann á eftir þeim, en þeir voru komnir úr kallfæri. „Hvaða bannsettur hávaði er þetta?“ bölvaði Filippus í svefnrofunum; flestir hinna voru þegar sofnaðir. TMM 1995:4 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.