Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 102
 sterk og linnti ekki blaðaskrifum um hana fyrr en rúmu ári eftir sýningu hennar í Ríkissjónvarpinu. Vildu margir meina að myndin væri eingöngu gerð landsbyggðarfólki til háðungar. Kvikmyndað fólk í fátækari löndum Frá því að Ríkissjónvarpið hóf útsendingar sínar árið 1966 hafa verið gerðir tugir ef ekki hundruð þátta í fátækari ríkjum heimsins og það af ýmsu tagi. Stöð 2 hoppaði síðan upp á vagninn 1986. Hin síðari ár hefur það verið áberandi að fréttamenn hafa slegist í för með mannúðarsamtökum s.s. eins og Rauða Krossinum og gert þætti um hjálparstarf og ‘ástand’ mála í við- komandi ríki. Einnig hefur nokkuð verið gert af þáttum um svokallað þróunarstarf íslendinga í nokkrum ríkjum Afríku s.s. eins og ísland Afríka: Þróunarstarf í Namibíu (1993). Þessir þættir, ásamt þeim sem unnir eru af lausráðnu starfsfólki, eiga það sameiginlegt að vera unnir á tiltölulega skömmum tíma og bera þess augljóslega merki. Ég veit t.a.m. ekki um neina mynd á íslandi sem hefur verið gerð á nokkurra ára tímabili, þar sem þáttagerðarfólkið hefur búið í ríkinu, á meðal fátæks fólks eða þátttakenda í þróunarverkefnum fslendinga og skrásett lifnaðarhætti þess. í þessum heimildarmyndum eru viðtöl sem tekin eru við fólk oftar en ekki formlegar uppstillingar og jafnframt oft möppudýr tekin í viðtöl, sem gefa myndunum yfirbragð þekkingar og kennivalds. Hið sama má segja um þá rödd sem talar yfir myndskeiðunum, „rödd Guðs“, hún er algeng lausn í íslenskum heim- ildarmyndum frá fátækari ríkjum, sem vekur m.a. upp spurningar um þekkingu og kennivald fjölmiðlamanna eftir nokkra daga dvöl í landinu. Tímaskort á vettvangi má oft rekja til fjármagnskorts íjölmiðlanna og veit ég að menn yrðu sælli með rýmri stundir til að vinna að þáttagerðinni. Það er hins vegar engin trygging fýrir því að gerðar séu betri myndir á mælikvarða þekkingar eða jafnvel siðferðilegrar umræðu. Þannig hefur t.a.m. kvik- myndagerðarmaðurinn Ousmane Sembéne frá Senegal gagnrýnt franska kvikmyndagerðarmanninn Jean Rouch fyrir að sýna fólk í Afríku eins og skordýr. (Stoller 1992:2) Rouch þessi hefur hins vegar eytt yfir 40 árum í Afríku við kvikmyndagerð og verið helsti talsmaður þess að kvikmyndagerð eigi að vera og bera þess merki að um samvinnuverkefni sé að ræða. Annað atriði sem Rouch hefur lagt áherslu á í kvikmyndagerð sinni er að kvik- myndagerðarmaðurinn sjálfur sé sýnilegur í verkinu, ekki sem hinn alvitri Guð, heldur maður/kona með myndavél sem leitar eftir sambandi við fólk og vill kynna okkur, áhorfendum, ákveðna hlið á lífi þeirra og hvernig hlutirnir snúa gagnvart þeim. Hvernig þau sjá heiminn. (Rouch 1975) (Þrátt fyrir ríka samvinnu við gerð myndanna s.s. undirbúning og tökur þeirra, 100 TMM 1995:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.