Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 87
85
Koma 3,2 sjúkrahúslegudagar á hvern mann í landinu (1941: 3,3),
á almennu sjúkrahúsunum 1,8 (1,8) og heilsuhælunum 0,75 (0,79).
Sjúkdómar þeirra sjúklinga, sem lágu á hinum almennu sjúkrahús-
um á árinu, flokkast þannig (tölur síðasta árs í svigum):
Farsóttir........................ 5,4% ( 3,9%)
Kynsjúkdómar .................... 0,8— ( 1,3—)
Berklaveiki...................... 5,5 -— ( 0,9 —)
Sullaveiki ...................... 0,1— ( 0,2-—)
Krabbamein og illkynjuð æxli .... 2,6— ( 3,5—)
Fæðingar, fósturlát o. þ. h.... 13,5— (13,7—)
Slys .'............................. 0,6— (6,9—)
Aðrir sjúkdómar ................. 65,5— (63,6—)
Að öðru leyti láta Iæknar ])essa getið:
Ólafsvíkur. Að auki ein ferð á mánuði til sjúkramóttöku á Sandi.
Stijkkishólms. Ferðir: Út í Eyrarsveit 33, suður í Miklaholtshrepp
15, inn á Skógarströnd 14, upp í Helgafellssveit 13 og út úr héraðinu
57. Á landi 76, flestar í bíl, og 56 á sjó. Skemmsta ferðin tók 2 tíma,
og vegalengdin var 5 km hvora leið, en lengstan tíma var ég 26 tíma að
heiman, enda var þá farið inn að Reykhólum sjóveg og þaðan á hest-
um inn í Þorskaf jarðarbotn.
hingcyrar. Fjöldi ferða lit fyrir kauptúnið er met í þessu héraði.
Vestmannaeyja. Eftir því sem ég get komizt næst, munu um 75 c,'r:
héraðsbúa leita til lækna eða máske vel það. Eg hygg, að svipað sé
hér og annars staðar, þar sem fljótt næst í lækna og farið er með allt
lil þeirra. Ferðir í skip eru svo að segja horfnar, síðan striðið skall á.
hyrir stríðið stunduðu hér fiskveiðar frá miðjum febrúar til apríl-
loka um 400 erlend fiskiskip, togarar og skútur, en vart meira en 15—20
enskir togarar hafa sézt hér í grennd síðustu 2 árin. Eyþór Gunnars-
son háls., nef- og eyrnalæknir dvaldist hér í vor uin vikutíma, og leit-
oðu margir til hans.
Egrarbakka. Ferðir alls uin 10000 km. Viðtalstíma hafði ég að Sel-
lossi tvisvar í viku allt árið. Þegar ferðirnar þangað ásamt skólaeftir-
htsferðunum eru taldar með, hafa ferðir orðið alls 415 og ferðavega-
lengdin samanlögð um 12000 km. Hvergerðingar og Stokkseyringar
hafa á liðnu ári sótt mjög fast eftir því að fá líka fasta viðtalstíma,
helzt tvisvar í viku á hvorum stað. Þeir vilja ekki Iáta sér skiljast, að
nokkuð sérstaklega stendur á um Selfoss, þar sem hann er ekki ein-
ungis miðsvæði, heldur á meginþorri héraðsbúa þangað mikil erindi
vegna verzlananna, mjólkurbúsins, bankans og sýslumannsins, svo að
nokkuð sé talið. íbúar hinna nefndu staða sækja og þangað ýmissa
ei'inda eigi síður en aðrir héraðsbúar. Nú er þess auðvitað enginn
hostur fyrir einn lækni að verða við öllum þessum óskum eða öllu
heldur kröfum, enda myndu Eyrbekkingar að vonuin mótmæla harka-
úga, ef tilraun yrði til þess gerð. En sakir þess, að ég veit, að það
veldur nokkurri óánægju, að ég hef ekki séð mér fært að verða við
]>essum óskum Hvergerðinga og Stokkseyringa, er mér næst skapi að
'eSgja niður viðtalstímann að Selfossi. Þá er að minnsta kosti öll-
um gert jafnhátt undir höfði, og þarf þá enginn annan að öfunda.