Andvari - 01.01.1970, Qupperneq 200
198
SIGURGEIR FRIÐRIKSSON
ANDVARI
gera, og þá er bezt að vera hér og lesa og hugsa. Ég hafði aldrei tíma til að hugsa
neitt í Reykjavík, og ég held, að ég hætti mér ekki út í annað eins annríki aftur,
Þegar ég kem heim, þarf ég að setja smágreinar í blöð og tímarit. Verð líklega
aldrei svo ríkur, að ég gefi út bók. Ég þarf að hugsa urn svo margt annað áður
en ég fer að hugsa um að verða ríkur.
Þótt ég ætlaði mér ekki að sækja urn styrk, ásetti ég mér að kynnast American
Scandinavian Foundation. Ég gekk í félagið. Argjald er 3 $, og fyrir það kemur
American Scandinavian Review. Það flytur meðal annars um 300 myndir á ári,
flestar frá Norðurlöndum, og er ágætt til að klippa það niður í myndasafn. Ég
kom þrisvar á skrifstofuna, en skrifari félagsins, sem þar á að vera til viðtals, var
tvisvar ekki við og einu sinni á nefndarfundi, svo ég talaði hara við stúlkumar.
Þær sögðu, að námsstyrkurinn byggðist á tillögum frá einstökum mönnum
(scholarship), venjulega 1000 $ frá hverjum, veitt sem eins árs námsstyrkur handa
einum stúdent frá einhverju ákveðnu landi, og því miður væri ekki hægt að
veita Islendingum námsstyrk, af því enginn hefði boðið fram scholarship handa
íslendingi. Éíklega ganga allar renturnar af sjóðnum, sem var 14 milljón, til
stjórnarkostnaðar, skrifstofukostnaðar, tímarits, bókaútgáfu o. fl. Þeir eru líka að
hugsa um að byggja hús í New York. Sumt ætti þó að borga sig, t. d. átti ég kost
á að drekka te með krónprinsinum sænska, þegar hann kom, mér þótti tebollinn
helzti dýr á 4 $, en efa ekki, að nógu rnargir hafa fengizt. Um reikningana gat
ég vitanlega ekki spurt, og þeir eru ekki birtir, nema líklega á aðalfundi.
Tímaritið getur Islands stöku sinnum í Norðurlandafréttum og flutti nú ný-
lega grein um ísland eftir mann, sem hafði ferðazt þar. Ritstjórinn, Hanna Astrup
Éarsen, — norsk, flutti röð af lyrirlestrum við bókavarðaskólann um bókmenntir
Norðurlanda. Ég sótti ekki unt það námsskeið, en fékk leyfi til að hlusta á fyrsta
fyrirlesturinn. — Byrjaði á Eddu og gat þess, hvar hún hefði verið skrifuð.
Ég talaði við íslenzka þjóðræknisforkólfa í Canada um samband við A. S. F.
í sambandi við stúdentaskipti milli Ameríku og Islands, en fannst, að Þjóðræknis-
félagið og A. S. F. mundi vilja sem minnst vita bvort af öðru, og skal ég ekki
segja, hvoru meir er um að kenna.
Það mun regla, að veita ekki styrk öðrum en félagsmönnum, a. m. k. er alltaf
talað um „fellowship" og „scholarship" saman.
I síðasta heli ritsins er auglýst:
„An lcelandic Fellowship.
For the first time in several years, the Foundation is enabled through the
generosity of one of its good friends, to offer among its Exchange Fellowship a
stipend of $ 1000 either for an American student to go to Iceland or for an Ice-
landic student to attend an American university. The requirements for this fellow-