Andvari - 01.01.1974, Blaðsíða 40
38
JÓIIANN IIAFSTEIN
ANDVARI
Mjög eftirtektarvert er þetta mat formanns Dagsbrúnar, stærsta verka-
lýðsfélagsins í landinu, á Bjarna Benediktssyni og viðhorfum hans til laun-
þegasamtakanna og þeirra erfiðleika í efnahagsmálum, sem af vinnudeilum
leiðir jafnan.
Af öðrum sjónarhóli eru ummæli þingskörungsins og bændahöfðingj-
ans Péturs Ottesen í afmælisgrein um Bjarna Benediktsson sextugan, þar
sem segir m. a.:
„Bjarni Benediktsson var maður bráðþroska. Hafði hann á óvenju-
lega ungum aldri aflað sér lærdómsframa. — Það var hvorttveggja í
senn ánægjulegt og þá ekki síður lærdómsríkt að kynnast Bjarna Benedikts-
syni. Það er ekki sérstaklega fljótgert að stofna til kunningsskapar við hann.
En þegar því marki er náð, markar tryggðin og einlægnin sporin. Þá er það
og hverjum manni ávinningur að kynnast Bjarna Benediktssyni sökum
þess, hve fjölhæfur gáfu- og lærdómsmaður hann er, búinn þeirri skap-
festu, drengskap og raunsæi, sem er grundvöllur trausts og farsæls sam-
starfs manna í milli. — Bjarni Benediktsson hefur nú átt sæti á Alþingi
í rúman aldarfjórðung. Hefur hann á þessu tímabili lagt gjörva hönd á
rnarga þætti löggjafarmála, og her það allt vott um gliiggskyggni hans á
þjóðháttum vorum og menningu samhliða því, sem stutt er að brautargengi
raunsærra framfara bæði til lands og sjávar. Frá formsins hlið er í lögum
þeim, sem Bjarni Benediktsson hefur lagt hönd að, svo vel til verks
vandað, að trauðla getur orkað tvímælis um það, hvað þar er aðalatriðið
hverju sinni. Er Bjarna Benediktssyni alveg sérstaklega sýnt um að gjöra
lagasmíð vorri slík skil. Af þeim mönnum, sem ég hefi átt sæti með á
Alþingi, tcl ég þá snjallasta lagasmiði frá þessu sjónarmiði séð, Einar
Arnórsson, fyrrverandi lagaprófessor og hæstaréttardómara, og Bjarna
Benediktsson. — Herverndarsamningur sá, sem vér Islendingar erum
aðilar að, ber ótvírætt merki glöggskyggni og hygginda Bjarna Benedikts-
sonar við samningagerð. Þar er svo um hnútana húið, að herlið hefur ekki
aðsetur hér á landi stundinni lengur en vér teljum nauðsynlegt hagsmunum
vorum og öryggi.“
Lárus Jóhannesson, fyrrverandi hæstaréttardómari og alþingismaður,
segir í dánarminningu um Bjarna Benediktsson:
„En sá Bjarni, sem ég kynntist árið 1942 (þá tók Bjarni fyrst sæti