Andvari - 01.01.1974, Blaðsíða 161
ANDVARI
RÆÐA VIÐ GUÐSÞJÓNUSTU í LAUFÁSKIRKJU 2. ÁGÚST 1874
159
undanförnu, en þó engan veginn svo mikið, að eigi verðum vér enn að þrá
aðra og rífari kosti til þess að geta með sanni heitið frjálsir þegnar í frjálsu
landi. Og þótt vér leiðum nú hjá oss að hugsa um það, sem lýtur beinlínis að
þjóðréttindum vorum og stjórnarhögum, þá er á margt annað að líta, sem oss
vanhagar um eða sem er öðruvísi á sig komið og miklu miður en ákjósanlegt
væri. Landið, sem vér húum í, er kalt og hrjóstrugt og ávaxtarlítið. Sumarið
hjá oss er stutt og stopult, svo oss veitir það oftast nær erfitt að búa oss til
hlítar undir hinn langa og stranga vetur. Vér erum fátæk þjóð, og oss skortir þó
eigi aðeins fé, heldur og kunnáttu í mörgum greinum til þess að koma því í
verk, sem oss mætti verða til gagns og sóma, til þess að hæta ýmislegt það,
sem oss brestur, og verjast því, sem hætt er við, að steypi hagsæld vorri. Vér
berum með oss fram á hið nýja skeið margs konar þungar menjar í andlegum
og líkamlegum efnum af því, sem yfir oss hefur gengið fyrr og síðar á liðnum
öldum með ánauð og ólögum, með örbirgð og hallærum. Já, vér vitum það
vel, að 1000 ára afmæli þjóðar vorrar gat eigi runnið henni upp með óbland-
inni gleði, því hún verður að kenna svo margra vankvæða og hefur enn um
svo mörg sár að binda. En þó skulum vér synir landsins á þessum tímamótum
hneigja hjörtu vor að þeirri hinni heilögu áminning: Gefið Guði vorum dýrðina!
Lútið honum með ljúfri auðmýkt. Deilið eigi við Guð, möglið eigi í móti hon-
um um það hlutskipti, sem hann hefur sent yður og hann einn hefur vald
til að laga í sinni hendi. Festið eigi augun svo við þá erfiðleika, sem að yður
þrengja, að þér þar fyrir látið yður gleymast, hvernig Drottinn leggur yður
líkn með þraut og hlífir yður þó við ýmsum þeim plágum, sem kremja bræður
yðar annarstaðar í heiminum. Gleymið eigi því, að til eru þau lönd, þar sem
nokkrum sinnum á einum mannsaldri ganga yfir borgir og byggðir svo grimm-
ar og hræðilegar drepsóttir, að elztu menn á voru landi hafa eigi þekkt nokkra
þvílíka um sína daga. Gleymið eigi því, að til eru þau lönd, þar sem þegnarnir
hafa lengi stunið undir svo megnri harðstjórn eða óstjórn, að í samanburði við
slíkt má eigi annað segja en að vér höfum búið við sældarkosti. Gleymið eigi
því, að til eru þau lönd, þar sem hinn hræðilegi hernaður og hinn þungi her-
kostnaður sviptir menn lífi þúsundum saman og flettir menn svo miklu fé, að
eigi verður tölu á komið, en oss hefur hinn náðugi Guð látið lifa í friði öld eftir
öld, lausa við allar þær ógnanir og mannraunir, sem æ eru samfara hinu blóð-
uga stríði. Já, kannizt við það, bræður mínir: Hinn náðugi Guð hefur gjört vel
til vor. Hann hefur lagt oss til mörg gæði og þar á meðal sum þau, er öðrum
þjóðum mættu þykja öfundarverð; hann hefur látið oss stýra undan margföldum
háska og grandi; hann hefur varðveitt þjóð vora sem sjáaldur auga síns í hinum