Andvari - 01.01.1974, Blaðsíða 42
40
JÓIIANN HAFSTEIN
ANDVAM
Svara við þessari málaleitan er vænzt svo fljótt sem við verður
komið, og reynist þau jákvæð, mun haft samráð milli aðila um það,
hvernig samstarfinu verði hezt háttað.
Bjarni Benediktsson."
Eftir andlát Bjarna Benediktssonar kom það í minn hlut sem forsætis-
ráðherra að hefja þær viðræður, sem um getur í hréfi þessu, en báðir aðilar
svöruðu málaleitun ríkisstjórnarinnar á jákvæðan hátt. Einnig voru tilkvaddir
fulltrúar frá Samtökum hænda, og tóku þeir þátt í flestum þeim fundum,
sem um þessar mundir voru haldnir um þessi vandasömu og viðkvæmu mál.
Eins og kunnugt er, náðist ekki samkomulag á þessum viðræðufundum
aðilanna, og var þó fyrst og fremst og nær eingöngu rætt um fyrri lið bréfsins,
þ. e. a. s. um víxlhækkanir á kaupi og verðlagi og ráðstafanir til að draga úr
meinlegum áhrifum þeirra. Hér er ekki vettvangur til að rekja, hvernig
þessum málum lyktaði, en meginatriði málsins er þó það, að ríkisstjórnin
gerði á sínum tírna þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar reyndust að hennar
dómi og leiddu til þess, að hagur þjóðarbúsins var með miklum blóma, er
stjórnarskipti urðu að loknum alþingiskosningum árið 1971.
Ég hef áður að því vikið, að formennskutímabil Bjarna Benediktssonar
í Sjálfstæðisflokknum og forsætisráðherratíð hans hafi einkennzt af miklum
og stundum snöggum umskiptum í íslenzku þjóðlífi. Timabilið frá
1962—1966 er óefað eitt merkasta framfaraskeið í sögu þjóðarinnar með
meiri lífskjarabata alls almennings á skemmri tíma en áður á grundvelli
þeirrar stefnu, sem mótuð var af viðreisnarstjórn Olafs Thors, er hann mynd-
aði eftir alþingiskosningarnar haustið 1959, en eins og kunnugt er og vikið
hefur verið að, tók Bjarni við emhætti forsætisráðherra í nóvembermánuði
1963. Síðari hluta árs 1966 tók að halla undan fæti, og á árunum 1967 os
1968 varð íslenzka þjóðin fyrir þyngri efnahagslegum áföllum en hún hefur
áður fyrir orðið. Fór þá allt saman, að afli hrást, síldarleysi varð algjört, út-
llutningsverð féll mjög verulega á erlendum mörkuðum, en aðrir markaðir
útflutningsafurða okkar, svo sem skreiðar, lokuðust gjörsamlega í Afríku
vegna borgarastyrjaldar þar. Máltækið segir, að það þurfi sterk bein til að
þola góða daga. Elitt er jafnvíst, að það þarf áræði, kjark og mikla þraut-
seigju til þess að veita örugga forystu lítilli þjóð, sem er jafnháð innflutningi
og útflutningi og við Islendingar, þegar útflutningsverðmæti hennar minnka
O O Ö Ö 7 I Ö Ö