Andvari - 01.01.1974, Blaðsíða 156
BJÖRN IIALLDÓRSSON;
Ræða við guðsþjónustu í Laufáskirkju
2. ágúst 1874
„Ó, Guð, hvað værum vér án þín?“ Án þín, þú hinn Almáttugi og Algóði,
sem einn hefur í þinni hendi líf og lán mannanna harna og býtir hverjum og
einum eftir þinni vild? Hvar skyldum vér eiga að leita oss hælis og trausts,
hvaðan skyldum vér mega vænta oss hjálpar og heilla, ef vér vissum eigi það,
að þú ert Frelsari allra þeirra, sem reiða sig á þig og breyta eftir þínum hoðum?
Æ, hve litlu orkum eigi v'ér með vorum veika mætti, með vorum skammsýnu
ráðum. Öll bót og blessun andleg og líkamieg, allar æskilegar framfarir, öll
sannarleg farsæld verður að koma að ofan, sem gjöf frá þér, þú faðir ljósanna
og lífsins, þú hötundur aldanna og vörður þjóðanna. Þess vegna horfum vér
upp til þín, Drottinn alls herjar, og könnumst við það, að þér heyrir til dýrðin og
heiðurinn, þakklætið og lofgjörðin fyrir handleiðslu þína og varðveizlu á þjóð
vorri um þau ár hennar, sem þegar eru fram hjá farin. Þess vegna látum vér
og einnig við uppruna nýrrar aldar óskir vorar og bænir koma fram fyrir þig.
Vér biðjum þig að annast mildilega allan hag þjóðar vorrar á hinum komandi
tíðum og taka aldrei frá henni þína náð og blessun. Vér biðjum fyrir oss sjálfum
og fyrir börnum vorum í því landinu, sem þú hefur fengið oss til bústaðar, að
hér megi vera þín tjaldbúð, að vér og þau megum ætíð búa i þínu skjóli og
gleðjast við það, að þú ert sá, senr vér nelnum þig, í hvert sinn, er vér kvökum
til þín með bæn þíns elskulega Sonar og segjum af einlægu hjartans trausti:
Faðir vor o. s. frv.
Texti: Dav. sálm. 90, v. 1-4 og 12-17.
1. Bæn Mósis, þess guðsmanns. Drottinn! Þú varst vort athvarf frá kyni til kyns.
2. Áður en fjöllin fæddust og þú til bjóst jörðina og heiminn, já, frá eilífð til
eilífðar, ertu Guð. 3. Þú gjörir manninn að dufti og segir: Komið aftur, þér
mannanna börn! 4. Því þúsund ár eru fyrir þínum augum sem dagurinn í gær,
þá hann er liðinn, og eins og næturvaka.
Ræða þessi er varðveitt í eiginhandarriti sr. Björns í Lbs. 2932 8vo.