Rauðir pennar - 01.01.1938, Page 26
en hilt sinnið ljót, heldur tilgangur þeirra. Itölsku flug-
vélarnar, sem komu hingað til lands, höfðu þann til-
gang að myrða konur og börn, til þess eins að full-
nægja sálsjúkri hégómagirnd drottnunargjarns grinnnd-
arseggs og auka enn okurgróða nokkurra ítalskra auð-
hringa. Einmitt þetta framkvæmdu þessar sömu flug-
vélar nokkrum árum síðar í Abessiníu og á Spáni.
Tilgangur stjórnarflugvélanna, sem flugu vfir Madrid
þennan minnisstæða dag, var í innsta eðli sínu mann-
úðlegur, sá, að bjarga heilli þjóð undan liæli erlends
kúgunarvalds, sem fór með blóðugum ófriði á hend-
ur liennar án allra saka. Bak við þessi tvö fyrirbæri,
sem að ytri ásýnd g'álu virzl bvort öðru áþekk, lágu
tvær gagnólíkar liugarstefnur: Annars vegar fasism-
inn, sem gert befir styrjaldir að æðsta takmarki sið-
fræði sinnar, er allir lilutir aðrir skuli lúta og miðast
við, stefna stéttarlegrar og þjóðernislegrar kúgunar,
stefna mannfyrirlitningar og menningarfjandskapar,
stefna hins andlega ruddaskapar. Hins vegar stefna
þeirrar þjóðfylkingarbugsjónar, sem nú er að þróast
til fullkomnunar víðsvegar um heim, sú stefna sem
miðar að afnámi allra styrjalda og allrar kúgunar,
lausn mannsins undan oki auðmagnsins og menningar-
innar úr fjötrum fasismans, stefna mannúðarinnar,
stefna lífsins. I’essi stefnumunur kemur revndar ljós-
lega fram í bardagaaðferðum þeim, sem beitt er á
Spáni: Fasistar leggja i rústir borgir og þorp, skjóta
niður allt lcvikt, myrða morðsins vegna og til þess að
láta sem mesta ógn af sér standa, í fullu samræmi við
þá hugarstefnu, er þeir fylgja. Iiins vegar er baráttu-
aðferð lýðveldishersins, sem forðast öll hryðjuverk, ó-
nauðsvnlega eyðileggingu og ofsóknir á hendur óvopn-
uðu fólki, og hlýtur að gera það samkvæmt eðli ])eirr-
ar hugsjónar, er hann berst fyrir. Það er til dæmis
enginn vafi á því, að stjórnarherinn gæti fyrir löngu
verið búinn að taka hina þýðingarmiklu borg Teruel,