Hugur - 01.06.2011, Side 35
Natura docet
33
úru. Markmið náttúruþekkingar verður að læra hvenær og við hvaða aðstæður
náttúran talar beint til okkar og átta sig á því að röddin kemur að innan.
Spinoza átti hugtak yfir slíka þekkingu: innsœi. Fjarlægðin - skrefin - milli þess
sem skilur og viðfangs hans hverfur. Innsæið (scientia intuitiva) er um náttúruna
sem okkur sjálf. Spinoza tilheyrði líklega aldrei þessum þræði sem ég hef verið
að reyna að draga fram. Náttúran sem umhverfi er strangt tiltekið gildislaus í
heimspeki hans, en mér finnst við hæfi að enda á honum.33 Náttúran er eðlið;
eðli mannsins er skynsemin og eðli umhverfisins er rúmið. Hún getur birst sem
flugnasuð í bíslaginu, hjálparhönd á lofti og hinar óendanlegu víðáttur sem fylltu
hjarta Pascal svo miklum ótta.34 Náttúran getur verið kennari ef við erum í fyrsta
lagi tilbúin að leyfa henni að tala til okkar og í öðru lagi ef við tökum mark á nátt-
úrunni er við þraukum í gegnum reynslu okkar af henni, snortin af fegurð hennar
og auðmýkt í hvert sinn sem skynsemin bregst oklcur.
Heimildir
Cottingham, John. 2004. ‘Our Natural Guide...’: Conscience, ‘Nature’, and Moral
Experience. Human Values. New Essays on Ethics and Natural Law. Ritstj. David S.
Oderberg ogTimothy Chappell. Basingstoke: Palgrave Macmillan.
Descartes, René. 2001. Hugleiðingar umfrumspeki. Þýð. Þorsteinn Gylfason. Reykjavík:
Hið íslenska bókmenntafélag.
Henry Alexander Henrysson. 2009. Manndómur: Hugleiðingar um Jón Eiríksson og
náttúruréttarkennslu hans. Hugur 21, 94-m.
Hume, David. 1988. Rannsókn áskilningsgáfunni. Þýð. Adi Harðarson. Reykjavík: Hið
íslenska bókmenntafélag.
Hume, David. 2001. A Treatise on Human Nature. Oxford: Oxford University Press.
Johnson, Monte. 200%. Aristotle on Teleology. Oxford: Oxford University Press.
Jónas Hallgrímsson. 1989. Ritverk Jónasar Hallgrímssonar j. Náttúran og landið.
Reykjavík: Svart á hvítu.
Leibniz, Gottfried W. 1956. Philosophical Papers andLetters I-II. Chicago: University
of Chicago Press.
Leibniz, Gottfried W. 1997. New Essays on Human Understanding. Cambridge: Cam-
bridge University Press.
Locke,John. 2000. An Essay Concerning Human Understanding. London: Everyman.
Magee, Bryan. 2002. Saga heimspekinnar. Þýð. Róbert Jack. Reykjavík: Mál og menn-
ing.
Pascal, Blaise. 1995. Pensées. Þýð. A.J. Krailsheimer. London: Penguin Books.
Tioreau, Henry. 1993. Civil Disobedience and Other Essays. New York: Dover.
33 Samkvæmt Spinoza á náttúran sér tvenns konar birtingarmynd eða hætti: „Hugur og Líkami
[eru] einn og sami hluturinn, sem er hugsaður ýmist undir einkunn Hugsunarinnar eða Rúm-
taksins. Af þeim sökum er röð eða tengsl hlutanna aðeins ein, hvort sem náttúran er hugsuð undir
þessari eða hinni einkunninni, og þar af leiðandi fylgir röð athafna og ástríðna Líkama vors eðh
sínu samkvæmt röð athafna og ástríðna Hugans." Siðfrœði, III. hluti, setning 2, skýring, íslensk
þýðing Gunnar Harðarson.
34 Grein Sigríðar Þorgeirsdóttur og Guðbjargar R. Jóhannesdóttir „Endurheimt fegurðarinnar á
tímum náttúrunnar" varpar ljósi á raunverulegt mikilvægi fegurðar fyrir upplifun á náttúrunni.