Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Page 53

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Page 53
HEINRICH HEINE þennan samning við Karl Heine, er skáldið varð að farga því verki, sem hann taldi sjálfur merkast allra rita sinna, gekk Heine í síðasta skipti út á götur Parísar. í eftirmála að síð- ustu ljóðabókinni, sem gefin var út að honum lifandi, Romanzero (1851), segir hann frá þessari síð- ustu göngu sinni: „Það var í maí 1848, að ég gekk út í síðasta skipti til að kveðja hin fögru goð, sem ég hafði tilbeðið á þeim árum, er ham- ingjan brosti við mér. Ég staulaðist með erfiðismunum til Louvrehallar- innar og var nærri hniginn niður, er ég gekk inn í hinn hátimbraða sal, þar sem hin blessaða gyðja fegurð- arinnar, Vor elskaða frú frá Míló, stendur á sínum fótstalli. Ég lá langa stund við fætur hennar og grét svo beisklega, að steinninn hefði mátt vikna. Gyðjan horfði á mig með meðaumkun, en um leið með svo miklu vonleysi, eins og hún vildi segja: En sérðu ekki, að ég er hand- leggjalaus og get ekki rétt þér hjálp- arhönd?“ í átta ár reis Heine ekki upp úr „rekkjugröf" sinni. Hann lá lamaður upp fyrir mitti, um stund gat hann skrifað sjálfur, en síðar var honum það einnig fyrirmunað, andlitsvöðv- arnir lömuðust og augnalokin, og hann varð að lyfta augnaloki annars augans með hendinni til þess að sjá þann, sem sótti fund hans. En í þessu hröri lifði andi skáldsins og logaði bjart til hinztu stundar. Sístarfandi var hann, sá um útgáfur rita sinna, las fyrir greinar, og í einveru nætur- innar, er þjáningin ein hélt vörð við stokkinn, orti hann ljóð, fegurri og átakanlegri en nokkru sinni fyrr. Hafi mannsandinn nokkru sinni unnið kraftaverk og sigrað efnið, þá var það unnið í hinu langa helstríði Heines. Á þessum löngu andvökunóttum ganga minningarnar fram, sækja að skáldinu eins og vofur. Jafnvel lysti- garðurinn á sveitasetri Salómós frænda kemur til hans í fullu skrúði og ýfir upp sár æskunnar: Vermaledeiter Garten! Ach, Da gab es nirgends eine Statte, Wo nicht mein Herz gekranket ward, Wo nicht mein Aug’ geweinet hatte. En garðskrattinn getur verið ánægður, Karl Heine frændi hefur séð um það, að heimurinn fái aldrei að lesa söguna um þennan garð, þar sem Amalia frænka lék sér að hjarta hans: Wenn ich sterbe, wird die Zunge Ausgeschnitten meiner Leiche, Denn sie fiirchten, redend kam’ ich Wieder aus dem Schattenreiche. Skáldið reynir að banda frá sér hendinni, er hann sér hinn feita milljónara frá Hamborg fyrir augum sér: 147 Nicht gedacht soll seiner werden, Nicht im Liede, nicht im Buche —
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.