Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 37

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 37
Tveggja binda frumútgáfa þýðingarinnar er öll hin glæsilegasta, í dýru leðurbandi með upphleyptum myndum af vopnum fornmanna á forsíðu. Texti bókarinnar er um eitt þúsund síður. Þar af eru um sex hundruð síður allnákvæm þýðing á frumtextanum, afgangurinn er lagður undir formála, inngang og viðauka þar sem fjallað er um landnám og sögu íslands fyrstu aldirnar, norræna víkinga, fornan gjaldmiðil og utanríkisverslun, svo fátt eitt sé nefnt. Loks eru í bókinni þrjú kort (af íslandi, Suðurlandi og Þingvöllum), auk uppdrátta af húsakynnum hér á landi á miðöldum. Allri þessari umfjöll- un er ætlað að draga upp mynd af þeim menningarheimi eða rými sem sagan varð til í og greiða þannig fyrir betri skilningi lesenda á verkinu. Bókahilla lesenda Einnig má koma að textatengslum úr annarri átt í sambandi við þýðingar og skoða hvernig eigin texti þýðandans — formálsorð, skýringar og annað — tilheyrir sjálfur tilteknum menningarheimi. Þar, ekki síður en í frumtextan- um, á sér stað meðvituð og ómeðvituð samræða við samtímann og þá texta sem lesendum þýðingarinnar eru tamir. Hér má enn taka dæmi af enskri þýðingu á Njáls sögu frá 1861. Ljóst er að Dasent telur The Story of Burnt Njal hafa höfuðgildi sem sagnfræðileg heimild. Undirtitill verksins, Life in Iceland at the End ofthe Tenth Century (Lífið á Islandi við lok tíundu aldar), gefur skýra vísbendingu í þá átt en til frekari staðfestingar má glugga í inngang verksins þar sem Dasent ræðir meðal annars um sagnfræðilegt gildi íslendingasagna. Hann viðurkennir þar að einstök atriði sagnanna, svo sem hinn syngjandi atgeir Gunnars, séu ótrúleg en bætir við að vitnisburður margra sambærilegra rita annarra þjóða hafi um langt skeið verið túlkaður sem ábyggileg sagnfræði: „ýmsum frásögnum var trúað hjá Þúkýdídesi eða Tacítusi, eða jafnvel Claredon eða Hume, þótt heimildir þeirra væru meira en tífalt vafasamari en heimildir íslendingasagnanna.6*1 Þótt megintilgangur Dasents sé að auka traust manna á frásögn Njálu er hann óbeint með þessum samanburði að finna verki sínu (þýðingunni ásamt skýringum) heppilegan stað á bókahillu breskra lesenda, við hlið viðurkenndra sagnfræðirita. Það er tæplega tilviljun að verk höfundanna sem Dasent nefnir spanna mestalla sögu vestrænnar menningar, að minnsta kosti eins og hún leit út frá bæjar- dyrum Breta á Viktoríutímanum: Þúkýdídes ritaði sögu Forn-Grikkja, Tacítus sögu Rómverja og þjóðanna í norðri og í sameiningu spönnuðu sagnfræðirit þeirra Davids Hume og Edwards Hyde Claredon sögu Stóra-Bretlands frá tímum Sesars fram á miðja sautjánda öld. Dasent hafði áhuga á að bæta The Story of Burnt Njal við þessar heimildir. Sagan varpaði TMM 1995:4 35
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.