Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 63

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 63
Líkt og á flugi horfði hann yfir gróðurvana og eyðilegt landslag: Upp úr gulleitri og birtu baðaðri mörkinni reis hæð með hellisskútum í hlíð sinni, svo hún minnti örlítið á hauskúpu, ekki ólíkt þeim hól, sem var hér rétt utan við Híerósalem og hét Golgotha, Hausaskeljahæð. Hann sveif inn yfir háhæðina, þar sem einmana vindsveipar þyrluðu upp gulum sandslæðum, og kom auga á svarta díla. Er nær dró sá hann, að þessar þústir voru menn og konur, fámennur hópur óbreyttra borgara og einstaka rómverskur hermaður meðal þeirra. Fólkið stóð við þrjá T-laga krossa, af því tagi sem Rómverjarnir notuðu til að krossfesta sakamenn, morðingja og burthlaupna þræla. Á hverjum krossi hékk maður, sólbakaður og næstum nakinn, nema hvað klæðisdula huldi lendar hans. Af einhverjum ástæðum beindist athygli hans að krossinum fyrir miðju, þó að syrgjendur væru þar fæstir. Hann sá eingöngu baksvip þeirra, en skynjaði sorg þeirra, örvæntingu og grát. Síðan sveif hann yfir þetta fólk og hafði nú skýra mynd af manninum á krossinum fyrir framan sig. Líkaminn var siginn undan þunganum; gegnum úlnliðina og fæturna höfðu verið reknir stórir járnfleinar, og úlnliðirnir voru jafnframt bundnir við þvertréð. Hálfstorknir blóðflekkir höfðu myndast við naglasárin, og víðar á líkamanum voru einhver sár og rispur, en blóðið virtist nánast hætt að streyma. Þar sem það seytlaði enn, rann það saman við svita á gljáandi hörundinu og tók á sig bleikan lit. Höfuð mannsins seig niður á bringu, svo að hann sá ekki andlitið. Maðurinn á krossinum hafði hár eins og Jóhannes, sítt og brúngullið, og það gljáði sérstaklega á það í sólinni. Líkaminn var nánast hreyfingarlaus; einu sinni eða tvisvar veltist höfuðið til á bringunni, frá einni hlið til annarrar. Þá lyfti maðurinn á krossinum óvænt en veikburða höfði sínu og reyndi að horfa fram — eða jafnvel til himins — með hálfluktum deyjandi augum. Hann færði sig nær af forvitni til að virða fyrir sér andlitið, og sá þá sýn, sem fyllti hann geigvænlegum ótta. Þrátt fyrir að andlitið væri skeggjað, varirnar líflitlar og sólsprungnar, kinnarnar þaktar flugum og augun brostin, sá hann að þetta var hann sjálfur, með hár Jóhannesar og skegg Matteusar. Hann gaf frá sér óp, og um leið féll höfuð mannsins snöggt niður í bringuna, líflaust. Allt varð svart líkt og sólin hefði snögglega verið myrkvuð. Hann vaknaði frá martröðinni með andfælum og fann hvernig svitinn hafði límt kyrtilinn við líkamann. Hægur og svalandi vestan- TMM 1995:4 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.