Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 66

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 66
svarið við Guð — og það var aðeins einn Guð til, hvað svo sem keisarinn sagði — að snúa þangað ekki aftur. Nú sá hann að það hafði verið viturleg ákvörðun. I því landi var einungis að finna óróa og umbrot, ofbeldi og dauða. Hann hafði fengið fregnirnar yfir til Alex- andríu, hvernig Gajus keisari hafði ætlað sér að vanhelga musterið með því að áætla uppsetningu á líkneski af sjálfum sér sem Seifi. Það hafði valdið miklum deilum og jafnvel blóðsúthellingum. Fyrir rétt- um þrettán árum hafði Títus — þá imperator, síðan keisari og nú guð, ef marka mátti Rómverja — ráðist inn í musterið, svívirt helgidóm- inn, brennt lögmálsbækur, rænt helgigripum og eytt bygginguna. Já, margir höfðu vanvirt helgidóminn. Hann minntist þess einnig hvernig sá maður, sem hann hafði eitt sinn kallað meistara sinn, smánaði hinn helga stað, er hann gekk berserksgang nokkru fyrir hátíð ósýrðu brauðanna endur fyrir löngu, er hann hratt um koll borðum víxlara og stólum dúfnasala, sparkaði í presta, farísea og fræðimenn, spúði froðufellandi út úr sér skammaryrðum. Þá hafði hann skilið að þessi meistari, svo vel menntaður í fræðum Essena sem hann hafði nú verið, var enn einn vandræðaseggurinn og ofstopamað- urinn. Hversu lengi þarf mannskepnan að lifa til að læra að lifa með friði? Hann hafði verið skynsamur, hann hafði komið sér í burtu áður en hin eiginlegu vandræði hófust, áður en blóðið flaut um stræti Hí- erósalem. í Alexandríu hafði honum vegnað vel, þar hafði hann ávaxtað laun sín. í fyrstu hafði hann einkum lagt stund á kaup- mennsku, keypt farma af víni frá Krít, koparvarningi frá Kýpur, reykelsum frá Antíokkíu og leirvörum frá Míletos. í staðinn seldi hann þangað egypskt gler, alöe og lín. Fljótlega hafði hann þó áttað sig á því að mesta gróðavonin lá í lánastarfsemi, svo hann hóf hana og hún skilaði ríkulegum ávöxtum, nægilega miklum til þess að hann gat um síðir keypt sér þennan búgarð hér í Cirtu. Þetta var heilræði hans til ættbræðra sinna, landa, trúbræðra: Farið og gjörið það sem Judah ben-Ishcariot gerði, yfirgefið land eymdarinnar, leitið tækifæranna þar sem þau gefast. Hæfileikar okkar þjóðar liggja í kaupmennsku og lánastarfsemi; þar má veiða gnótt fiskjar, jafnvel þótt vatnið virðist dautt. Gamli maðurinn strauk hendinni yfir hárlítinn kollinn. Já, hann hafði unnið fyrir sínum lífslaunum á heiðvirðan hátt, hann gat staðið 64 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.