Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 90
til vill af ívið of heitri bókstafstrú. Ég ætla mér ekki þá dul að reyna að leysa þennan ágreining hér í eitt skipti fyrir öll en finnst þó tími til kominn að einhver beri klæði á vopnin. VIII Með hliðsjón af ofangreindum athugasemdum hlýt ég að lokum að spyrja hvort ég telji okkur hafa miðað eitthvað áfram? Ég eftirlæt lesendum að mestu að dæma um það en vil þó í þessu sambandi taka heilshugar undir með Þorgeiri Þorgeirsyni þegar hann skrifar: Mér var kennt að starf Griersons og hans líka væri undirstöðuþátt- ur í nútíma kvikmyndagerð. Þáttur sem enginn heilvita kvik- myndahöfundur mætti láta sér fátt um finnast. Enda hafa dugandi kvikmyndaleikstjórar Evrópu til skamms tíma litið á það sem skyldugan þroskaáfanga að gera dokúmentarmyndir.33 í upphafi máls míns velti ég örlítið vöngum yfir hugsanlegum „endalokum kvikmyndarinnar“ í kjölfar aldarinnar sem nú er að ljúka. Margir hafa í þessu sambandi bent á hin óvissu afdrif „skáldmyndanna“, þar sem hvert stór- skáldið á fætur öðru hefur fallið frá eða á annan hátt yfirgefið kvikmynda- listina en nýliðun hins vegar verið dræm. Milmar Oddsson birtir einmitt lista um brottfallin kvikmyndaskáld í grein sem nýlega birtist í Morgunblaðinu.34 Þorgeir Þorgeirson myndi eflaust vilja bæta ýmsum mætum heimilda- myndahöfundum á slíkan lista en sjálfur vildi ég minnast ýmissa Ijósskálda sem einnig hafa horfið yfir móðuna miklu. Listi Hilmars er góður og gildur svo langt sem hann nær35 en þar mættu samt að ósekju standa nöfn eins og: Arnaldo Ginna, Bruno Corra, Viking Eggeling, Hans Richter, Man Ray, Marcel Duchamp, Fernand Léger, Walter Ruttmann, Oskar Fischinger, Germaine Dulach, Len Lye, Harry Smith, Kenneth Anger, Maya Deren og Norman McLaren — auk nafna þess fólks sem enn er að, svo sem Ernie Gehr, Michael Snow, Yvonne Rainer, Peter Kubelka, og að sjálfsögðu Stan Brak- hage. Tilraunamyndir hafa lengst af markað útjaðar kvikmyndalistarinnar og þurfa lesendur því ekki að blygðast sín þótt nöfn ofangreindra „ljósskálda“ séu þeim framandi.36 Þessi jaðar liggur jafnframt óvíða „utar“ en á íslandi þar sem tilraunakvikmyndagerð er varla til. Ég kann enga algilda skýringu á þessari staðreynd en mér þykir þó sýnt að hún hljóti að reynast íslenskri kvikmyndagerð fjötur um fót, a.m.k. þegar til lengri tíma lætur. í því ljósi finnst mér rétt að taka ofangreinda ábendingu Þorgeirs Þorgeirsonar og bæta ögn um betur: Kvikmyndalist sem ekki hlúir að öllum möguleikum sínum 88 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.