Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 96
300 V u um hætturnar sem ógnuðu tilvist íslenskrar menningar var mikilvægari. Þetta atriði var svo mikilvægt að það er lögfest hlutverk Sjónvarpsins að vinna að andspyrnunni. (sbr. útvarpslög) Upphafsmenn Ríkissjónvarpsins lögðu þar með strax mikla áherslu á menntunarlegt gildi miðilsins s.s. gerð heimildarmynda2 um land og þjóð. Annað atriði sem ég vil neftia í þessu sambandi er að almennt innan sjónvarpsfyrirtækja virðast ríkja þau viðhorf að sætta þurfi ólíkan smekk fólks, að brúa þurfi bil milli aldurshópa, mismunandi menntunarstig og fleira í þeim dúr. Afleiðingin er sú að lítið svigrúm reynist til annarskonar kvikmyndagerðar en hefðin segir til um (Crawford og Turton 1992:260). Útkoman er því ákveðin vantrú á áhorfendum sem vitibornum manneskjum og sést það hér á landi t.d. á því hvernig heimildarmyndir eru almennt matreiddar — á mjög hefðbundinn hátt er varðar form og stíl, þær þurfa að vera skemmtilegar (jákvæðar) og útkoman verður gagnrýnislaus framleiðsla sem er ætlað að fræða og mennta. Ég vil halda því fram að þessi tengsl miðilsins við markmiðin (þ.e. andsvar við ameríkaníseringu og menntunarlegt hlutverk þeirra) hafi mótað mjög þá siðferðilegu hugsun sem býr að baki heimildarmyndagerð hér á landi. Með tilliti til þess að íslensk kvikmyndaframleiðsla er (og á að vera) til heilla fyrir Islendinga sem þjóð og með aðgreinda menningu, þá virðist litið svo á að hlutverk fjölmiðlamannsins sé svo mikilvægt að réttur einstaklingsins í íslensku samfélagi er oft fýrir borð borinn. Hér á ég ekki við að íslenskir fjölmiðlamenn séu að ryðjast inn á heimili fólks og krefja það um viðtal vegna þess að málstaðurinn sé svo góður. Hugsunin er frekar sú að fjölmiðla- menn virðast oft ekki íhuga þann möguleika við gerð á heimildarmynd að þeir hafi siðferðilegum skyldum að gegna við þátttakendur í myndinni og að nauðsynlegt sé leita eftir samþykki þeirra fýrir þátttöku. Heimildarmynd- ir á íslandi eru oftast gerðar undir því yfirskini að þær gæti hlutleysis og að veruleikinn sé sýndur eins og hann raunverulega er.3 Því er ekkert rúm fyrir siðferðilegar vangaveltur t.a.m. hvort leita eigi eftir leyfi til þess að mynda fólk (sjá Ruby 1988; Pryluck 1988) vegna þess að á engan er hallað, myndin er „heimild", „hlutlaus skráning" og án gildisdóma. Ef við hugum að síðara atriðinu, um tengsl áhorfenda og heimildar- mynda, má segja að siðferðislegar skyldur fjölmiðlamannsins við almenning séu mjög sterkar. I greinargerð með ályktun Evrópuráðsins um siðferði í blaðamennsku (sem á við um flesta fjölmiðlun) segir í blaðagrein að „fjöl- miðlar ættu ekki að líta á upplýsingar sem tilgang í sjálfu sér,..., heldur sem leið til að stuðla að þroska einstaklinganna og þjóðfélagsins í heild.“ (Páll Þórhallsson 1994:10) Og í skrifum Sigurðar Kristinssonar heimspekings um siðareglur íslenskra blaðamanna segir að fjölmiðlamenn hafi þá frumskyldu: 94 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.