Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 100
síst myndir af lífmu um borð séðu með augum sjómannanna sjálfra. Því miður reynist þessi frétt einungis fögur fyrirheit. I raun reynist myndin uppheíja sjómannslífið á goðsögulegt plan, þar sem sjómaðurinn er hetja. Myndin treystir í sessi ákveðna sjálfsímynd fslendinga sem byggir á alþýðu- skýringum á sjómannslífinu, en á sér litla stoð í raunveruleikanum. (Sjá Gísli Pálsson 1987) Ein skylda íjölmiðlamanna er að leita eftir sem áreiðanlegustum upplýs- ingum og hefur sú leið verið oftast notuð að leita til einstaklinga innan opinbera kerfisins sem eru sérfræðingar í tilteknum viðfangsefnum. Ég tel hins vegar að í ljósi þeirra heimildarmynda sem ég ræði í þessari grein þá megi segja að hlutur sérfræðinga í framleiðslu íslenskra heimildarmynda sé afskaplega rýr. Hér á ég ekki við að fjölmiðlamenn leiti lítið til fólks sem hefur sérþekkingu á ákveðnum viðfangsefnum og stundar rannsóknir s.s. innan veggja háskólastofnana, heldur að þátttaka þessara sérfræðinga í ferlinu við gerð myndarinnar sé rýr. Oftast liggur framlag þeirra einungis í ráðgjöf til handritshöfunda eða vali á myndefni á frumstigum verksins. Það má ímynda sér að meðal fjölmiðlafólks ríki tortryggni gagnvart þessum sérfræðingum og að sama skapi má segja að sérfræðingar séu tortryggnir í garð kvikmyndarinnar og fjölmiðlafólks. Á hverju byggist þessi tortryggni? Fyrst og fremst á vanþekkingu hvors um sig á sviði hins og lítilli tiltrú þessara hópa á að hægt sé að setja sig í spor hins til að skilja eðli starfsvettvangsins og þær kröfur sem gerðar eru til þeirra. Sé þetta rétt, hefur þetta tvennt í för með sér sem snertir beint siðferðilega umræðu; annars vegar takmarkaða tiltrú á hugtakinu ‘upplýst samþykki’ og hins vegar er ásetningur fjölmiðlafýrirtækja (að greina frá raunverulegu lífi fólks) byggður á rangri skilgreiningu á áhorfendum. Hið síðast nefnda byggist á þeirri skoðun innan fjölmiðlafýrirtækja að það séu starfsmenn þeirra sem skilji miðilinn og einnig hvað það er sem áhorfendur vilji og þoli að sjá en ekki sérfræðingarnir. Mótsögnin í þessari afstöðu sést best á því að fjölmiðlafólk fæst við framleiðslu á heimildarmyndum um margvísleg málefni s.s. eins og sjávarútveg (Verstöðin ísland (1993), innflytjendur (Nýir landnemar (1993)) eða fræðilegar ritsmíðar (Vísindi á villigötum? (1995)), nokkuð sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar eða innan veggja stofnana eins og Háskóla íslands hafa verið að fást við í áratugi. Árið 1992 sýndi Ríkissjónvarpið heimildarmyndina Nýbúar úrAustri sem það lét gera um nýbúa á íslandi frá Asíu. í þættinum var ekki brugðið út af vananum í framleiðslu slíkra mynda og var rætt við nokkra nýbúa og fulltrúa stofnana sem hafa samskipti við þetta fólk. Myndin sem dregin var upp af þessu aðflutta fólki var mjög jákvæð, svo ekki sé meira sagt, en undir niðri 98 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.