Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Qupperneq 101

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Qupperneq 101
mátti oft greina að ekki er allt sem sýnist í þessum efnum. Til að mynda er sagt frá því í lok myndarinnar að það hafí reynst þáttagerðarfólkinu mjög erfitt að fá nýbúa til viðtals um aðstæður þess og viðhorf til samfélagsins. Sú ákvörðun, að greina frá þessu í myndinni, er lofsverð og mjög mikilvæg, þar sem hún afhjúpar misheppnaða tilraun til að gera mynd um innflytjendur á íslandi. Þess í stað fengum við að sjá mynd með frásögnum af innflytjend- um á íslandi. Þáttagerðarfólkinu er augljóslega mikill vandi á höndum þegar fólk neitar að taka þátt í myndinni. Við slíkar aðstæður er kvikmyndagerð- arfólki ögrað og hér reynir á þekkingu þess til að vinna úr aðstæðunum. Ég tel að þáttagerðarfólk Nýbúa úr Austri hafi hins vegar brugðist skyldu sinni í þessum efnum. í stað þess að velja þá leið að gera mynd um misheppnaða tilraun þeirra til að gera myndina sem þeir ætluðu að gera í byrjun, þá halda þeir í upphafleg markmið. Mynd um misheppnaða tilraun hefði sagt meira um nýbúana, samband nýbúanna og íslendinga, og ekki síst sagt okkur meira um það við hvað er verið að fást t.d. í menningar- og félagslegu tilliti. Þáttagerðarfólkinu er hins vegar ekki alls varnað. í lok myndarinnar er effirfarandi texta brugðið upp á skjáinn: ‘Tekið skal fram að ekki er alltaf samband á milli þess sem fjallað er um í texta og þeirra kvenna sem hér hafa birst myndir af.’ Hér birtast skýr skilaboð um að þáttagerðarfólkinu er umhugað að vernda þátttakendur sína frá misskilningi. Þessi texti er hins vegar áberandi vísbending um að þáttagerðarfólkið telji áhorfendur ekki fullfæra um að draga slíkar ályktanir sjálfir. Bandaríski kvikmyndafræðingurinn Bill Nichols hefur bent á lýðræðislegt yfirbragð heimildarmynda sem notast við keðju af viðtölum. (1988:55) Með þessari tækni má kynna margvísleg sjónarmið eins og var t.a.m. reynt í nýlegri sjónvarpsmynd Vísindi á villigötum?(1995), en að sama skapi er þetta vandmeðfarin aðferð. Gryfjan sem íslenskt fjölmiðlafólk fellur í í þessum efnum er að í stað þess að kryfja málefni á þennan hátt, er eingöngu boðið upp á kynningu sjónarmiða og er látið þar við sitja. Má sjálfsagt skýra þetta með ýmsum hætti, en kannski einna helst með hlutlægnissjónarmiðum fjölmiðlafólks. Það má hins vegar bæta því við að í ljósi reynslunnar hefur íslensku fjölmiðlafólki ekki verið tekið neitt sérstaklega vel þegar mjög ákveðinn broddur hefur verið í kvikmyndagerðinni. Hægt er að benda á a.m.k. tvö slík dæmi, annars vegar Þjóð í hlekkjum hugarfarsins (1993) og hins vegar Fiskur undir steini (1974). Seinni myndinni var ætlað að kanna hvernig ákvæðum laga um jafnan aðgang allra íslendinga að listum og menningu væri háttað úti á landsbyggðinni. Völdu kvikmyndagerðarmenn- irnir Grindavík sem tökustað og verður ekki annað sagt en að myndin sé ósköp sakleysisleg könnun. Viðbrögðin við myndinni urðu hins vegar mjög TMM 1995:4 99
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.