Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 103
leyfir Rouch viðfangsefnum sínum í myndunum ekki að taka þátt í klippingu þeirra. Það gerir aftur á móti Ástralinn David MacDougall í sumum mynd- um sínum. Þessa samvinnu má rekja til gagnrýni frumbyggja víða um heim, sem gengur m.a. út á það að segja samþykki fyrir þátttöku í kvikmyndagerð gilda fyrir allt ferlið, frá upphafi til lokafrágangs myndarinnar í klippiher- berginu). Ég vil halda því fram að íslenskt fjölmiðlafólk eigi töluvert í land með að tileinka sér þessi viðhorf Rouch, þrátt fyrir að viljinn sé fyrir hendi. Eitt er að eiga sér kenningu og markmið, annað er að framkvæma svo að vel sé. íhugið t.a.m. hvað það er sem kemur út úr viðtali þáttagerðarfólks við einhvern starfsmann í þróunarverkefni Islendinga í Afríku. Getum við gert ráð fyrir því að þessi starfsmaður segi framan við myndavélina hvað sé að þessu verkefni, hvaða ágreiningsefni megi rekja til yfirmanna verkefnisins, sem koma frá öðrum menningarsvæðum og hafa þar með oft ólíkar hug- myndir um hlutina? Ég held ekki. Vegna þessara vinnubragða er ásýnd allra íslenskra heimildarmynda frá fátækari löndum yfirborðskennd, ofurjákvæð og án allra raunverulegra átaka. Árið 1994 var sýnd í Ríkissjónvarpinu heimildarmyndin Konan sem vildi breyta heiminum. Myndin fjallar um Þóru Einarsdóttur og störf hennar í fátækrahverfi í Madras á Indlandi. Meginuppistaða myndarinnar eru svip- myndir af því sem fýrir augu hefur borið á ferð sjónvarpsmanna og þær síðan sýndar með þulartexta eða með orðum Þóru. Við fáum aldrei að sjá eða heyra það sem við getum kallað óformlegar hliðar ferðalagsins og kvikmyndagerð- arinnar þ.e.a.s. það sem Þóru og „hennar fólki“ eins og hún kallar það, fer á milli eða í hvernig sambandi umsjónarmaður þáttarins er við það fólk sem á vegi þeirra verður. I myndinni fáum við aldrei að heyra Þóru tala við „fólkið hennar.“ Við fáum eingöngu að sjá að hún á í einhverjum samræðum við þetta fólk. Um hvað vitum við ekki. Það sem fyrir augu ber í myndinni eru mjög formlegar uppstillingar; myndatökumaðurinn tekur götu- og yfirlits- myndir, umsjónarmaðurinn gengur að myndavélinni og talar til okkar, fólk stillir sér upp fyrir framan myndavélina s.s. þegar þau heimsækja spítala fyrir holdsveika. I myndatökunni kemur ekkert á óvart. Ég vil hins vegar minnast á tvö atriði í þessu samhengi. Fyrsta atriðið snýr að ferð myndatökumanns- ins um fátækrahverfið þar sem Þóra hefur starfað. Við fáum að sjá götulífið og ærslafull börnin sem eiga þar athvarf. En við fáum einnig að sjá inn í „hreysin“, eins og híbýli fólksins eru kölluð í myndinni, en myndatökumað- urinn stígur af götunni inn í þau og myndar. Eitt sinn fáum við að sjá nánast nakið barn skríðandi um í fábreyttu herbergi og nokkru síðar dormandi kvenfólk á gólfinu. Yfir síðari myndunum eru orð Þóru leikin þar sem hún er að lýsa því hvernig var umhorfs er hún kom þarna fyrst fýrir tuttugu árum, TMM 1995:4 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.