Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 113

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 113
uppurið. Skáldsögur Einars frá tíunda áratugnum eiga líkt og Eyjabálkurinn allt sitt undir sælulandi frásagnarlistarinnar, hinum kraumandi atburðapotti uppgripanna, en þær eru íyrst og fremst gagnrýni á hann. Þessar sögur halda í raun uppi linnulausum árásum á lífæð sína. Og ef gagnrýnin á athafna- mennina og framkvæmdavitleysuna er hið eiginlega viðfangsefni Kvikasilf- urs og Heimskra manna ráða, þá mætti einnig snúa því við og segja að þessi gagnrýni verði athafnafrásögnunum að bráð. Sögurnar eru sagðar til þess eins að verða gerðar að engu, til að verða gagnrýndar sem „æði“ og vitleysa, en stöðugleikaramminn sem gagnrýnin gengur út ffá getur á hinn bóginn ekki starfað án allra æðissagnanna. Því verða tengsl gagnrýninnar og viðfangs- efnis hennar að einskonar eilífum borðtennisleik. Það er ekki hægt að komast út úr þessum eilífa umsnúningi gagnrýninnar og þess sem er gagnrýnt. Frelsi skáldsagna eins og Djöflaeyjunnar fólst ekki síst í því að þessu víxlverkandi og lokaða sambandi gagnrýni og viðfangsefnis var hafnað. Það var sett til hliðar og við það opnuðust nýjar leiðir til að segja sögu, til að fást við viðfangsefni sem höfðu verið skilin mjög einhæfum skilningi um langt skeið. En nú blasir við einskonar hugsanafangelsi sem dregur furðulega mikinn dám af því hvernig orðræðan um stöðugleikann er notuð í textum stjórnmálamanna og efnahagssérfræðinga. Stöðugleikinn er orðinn til vegna kreppu sem varð til vegna óráðsíu sem er nauðsynleg til þess að skilgreina stöðugleikann. Án óráðsíu er enginn stöðugleiki. Þannig er heldur engin gagnrýni á athafnaæðið möguleg án athafnaæðisins. Frásögn og gagnrýni bíta sporð hvorrar annarrar. Þetta virðist vera pattstaða æði margra íslenskra skáldsagna á ári stöðugleikans, ekki bara Kvikasilfurs. Listin og peningamir Hallgrímur Helgason: Þetta er allt að koma Ferðin frá sjötta áratugnum inn í þann tíunda, ferðin frá umbrotunum til stöðugleikans, er eitt meginviðfangsefni skáldsögunnar Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason. Hafi stöðugleikinn verið settur til jafns við aukna skynsemi í Kvikasilfri, þá fer lítið fýrir svo jákvæðri túlkun í þessari sögu. Þegar numið er staðar í nútíðinni blasir við mynd hinnar fullkomnu stöðn- unar. Ekkert er á hreyfmgu lengur. Allt hefur lognast út af í borgaralegri lognmollu: )VAllt er í öruggum höndum, tilviljun bundin í belti. Mistök mannkynssögu leiðrétt með lagasetningu. Til að stemma stigu við. Fyrir- byggjandi aðgerðir. Forvarnarstarf ‘ (bls. 409). Þessi lokatónn er niðurstaðan af frásögn sem öll snýst um sigurgöngu hinnar borgaralegu meðalmennsku. TMM 1995:4 111
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.