Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 114

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 114
Saga „listakonunnar“ Ragnheiðar Birnu er saga af hjákátlegri tilraun ís- lenskrar, nýríkrar borgarastéttar til að skapa sér menningarlega sjálfsmynd. Saga sem endar aðeins með staðfestingu þess að listin sé í raun ekki til nema sem söluvara og skraut í stofum. Listin var aldrei meira en peningarnir sem þessi stétt náði í með „uppgripum“. Hún hefur enga tilvísun til frumspeki- legra, þjóðfélagsgagnrýnna, þekkingarfræðilegra eða siðferðilegra gilda: hún er aðeins sitt eigið skiptigildi. Og hafi menn í gegnum árin reynt að breiða yfir þennan efnahagslega grunnþátt hennar, þá barði efnahagsvæðing hug- arfarsins á níunda áratugnum það endanlega í gegn að menn gátu ófeimnir litið á hana sem hverja aðra söluvöru. Listamennirnir sem Hallgrímur lýsir eru fyrst og fremst sölumenn. Vinna þeirra fellur eins og flís við rassinn á hinni nýju vinnutilhögun upplýsingasamfélagsins. Listamennirnir eru á engan hátt frábrugðnir öðrum þjónustustéttum. Þeir ráða ekki yfir neinum grundvelli sem gerir þeim kleiff að gagnrýna samfélagið eða breyta því. Þeir hafa enga burði til að sinna spámannsskyldum snillingsins eða boða ný gildi; ekkert af því sem hin rómantíska og seinna móderna fagurfræði ætlaði listamanninum. Listafólkið er bara enn einn liðurinn í fjölmiðla-, upplýsinga og afþreyingarframleiðslu samtímans. Listamaðurinn er í raun jafn þarfur eða þá óþarfur og hver önnur stétt. Hann hefur ekkert tilkall til sérstakrar köllunar, gáfu eða hlutverks. í Þetta er allt að koma er haldið uppi hvassri gagnrýni á þetta samfélag, þessa gerfrlistamenn og raunar alla fagurfræði nútímans. Þess vegna spannar sagan yfir mjög vítt svið, skopstælir hóp fólks sem flestir kannast við og beitir íyrir sig lifandi tungumáli samtímans, leikur sér með það og snýr upp á það til að ná utan um ólík svið samfélagsins. Helsti styrkur þessarar bókar eru þessir tungumálsleikir. Bókin grípur til óteljandi orðræðutegunda og stíl- gerða, hendir á lofti talmál, slettur og týpíska frasa og býr til mjög taktfasta hrynjandi úr þessari blöndu sem opnar og sprengir upp þann eilítið fastnjörvaða málheim, það ritmál sem loðir svo við íslenskan prósa. I textanum er fyrir hendi næmi fyrir blæbrigðum í talmáli og stíl sem sjaldgæft er að sjá í hérlendum skáldsögum. Það er stundum eins og hin geldandi hönd íslenskudeilar Háskóla Islands hafi endanlega bannfært öll frávik ffá stand- ardíslenskunni sem er rituð utan á mjólkurfernurnar hjá MS og að höfundar veigri sér við að skrifa annað en það sem þar stendur, hafi þeir á annað borð þá máltilfinningu og þá hugsun sem nauðsynleg er til að valda slíkri mál- leikni. Texti Hallgríms er áreiðanlega best heppnaða tilraun íslensks rithöf- undar á seinni árum til að veita „röddum“ nútímaheimsins inn í íslenskan prósa. Það er því þeim mun sorglegra að öll þessi athyglisverða og merkilega uppáfinningasemi er að endingu kæfð af hinni rígbundnu og niðurnjörfuðu formgerð bókarinnar. 112 TMM 1995:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.