Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 116
hugmyndafræði fái áfram þrifist. Hin sífellda afneitun annarra möguleika og annarra sjónarhorna þröngvar þessari hugmyndafræði að síðustu inn í öngstræti þar sem hún trénar vegna skorts á sveigjanleika og nýjum hug- myndum. / lukturn heitni, nýjasta skáldsaga Fríðu Á. Sigurðardóttur, er einmitt saga af fulltrúa þessarar athafnasemi. Hinn miðaldra athafnamaður, Tómas, er kominn í kreppu sem hann kemst ekki út úr með góðu móti. Eftir misheppnaða sjálfsmorðstilraun sest hann niður í sumarbústað föður síns og reynir að festa á blað undangengna atburði og skýra þá út fyrir sjálfum sér. Tómas er sundurtættur maður þrátt fyrir velgengni sína á viðskiptasvið- inu, góða menntun og stöndugheit. Hann vaknar upp við að heimur hans er kominn í þrot vegna innri takmarka sinna og að allt sem hann trúði á er orðið ótryggt og óvisst. Hann veit ekki sitt rjúkandi ráð. Faðir hans, Jóhann Marselíus, er persónugervingur þess kerfis sem Tómas hefur fórnað ævi sinni. Faðirinn sem yfir öllu gín og sem synirnir reyna í sífellu að geðjast en geta þó aldrei. Heimur föðurins er í raun kominn úr liði. Fyrirtækið á í gríðarlegum erfiðleikum vegna þess að ákvarðanir hafa verið teknar sem ekki miða að öðru en að geðjast þessum gamla manni. Líkt og í Kvikasilfri eru hér komnir grunndrættir æðisins. Þrátt fyrir að efnahagslífið reyni á ytra borði að sýnast skynsamt og röklegt eru ákvarðanir athafna- mannanna óskynsamlegar, flausturskenndar og tilfmningabundnar. Þær miða ekki að gróða eða hagsýni heldur að því að geðjast kerfinu sjálfu, föðurnum sem kom fyrirtækinu á fót og byggði það upp með leiðsögn síns spámannlega innsæis: „Því Jóhann Marselíus varð fyrir uppljómun. Honum vitraðist að íslendingar skyldu ... læra eins og allar siðmenntaðar þjóðir að nota klósett, vask, bað og sturtu“ (bls. 46). Þessi lukti heimur er kominn að fótum fram en er haldið gangandi með leikaraskap. Þó svo að fyrirtæki þeirra feðga sé komið að falli er ákveðið að reyna að bjarga því með því að þenja það enn út, keyra allt á fullt. Frásögnin af þessum tilraunum getur því ekki orðið hin venjulega athafnamannasaga heldur aðeins saga af örvæntingu, kreppu og þrengingum. Hin hefðbundnu frásagnarlíkön reynast ónothæf andspænis þessum brotakennda veruleika. Þau eru sífellt sett í gang en nema um leið staðar andspænis draumunum, þránum og hinum bældu minningum. Þó svo að Tómas reyni að bægja öllum óskynsömum hugrenningum á brott með því að tönnlast á hinu röklega, ásækja þær hann engu að síður. Því einkennist sú frásögn sem hann skrifar eftir að hann hefur reynt að farga sér, af rofum og þögnum. Hann skrifar ekki sögu af glæsilegum uppgripum og athöfnum heldur sögu af ótta sínum, af átökunum við föðurinn og þrá sinni eftir ást og lausn úr sínum lukta heimi. Þetta er frásögn sem fellur í raun saman við mótvægi karlheimsins, þann heim sem Tómas vill ekkert af vita, þó svo að hann þrái hann í raun. Frásögn 114 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.