Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 120

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 120
úr stöðugleikanum. Hún setur lesandann strax inn í umhverfi sem vísar öllu því dæmigerða sem loðir við íslenskar skáldsögur frá sér. Hún hrífur hann strax með sér inn í tímaskeið og umhverfi sem ekki virðist eiga neitt sameig- inlegt með þeim grunnformum sem íslenska skáldsagan styðst við. Og henni lýkur á lýsingu á þeirri vídd sem gæti opnast handan tvíhyggjunnar, þessu rými „handan góðs og ills“. Við fyrstu sýn er þessi lýsing ekki sérlega upplífgandi: „Fyrir upphaf tímans hafði himnasmiðurinn greypt hverja hreyfingu og stunu, hvert lát- bragð og siguróp heimsslitanna í hljóðfærið; og þar sem handaverk hans sundraðist nú í frumefni sín á eldhafi sólarinnar, þá var úti um að sú atburðarás yrði nokkru sinni leikin til enda. Valdabaráttu ljóss og myrkurs var lokið“ (bls. 218-219). Sagan er fryst. 1 stað dómsdagsins þar sem reikn- ingar eru gerðir upp og nýr tími tekur við af þeim gamla varir kyrrstaðan að eilífu. Þó svo að sagan haldi í raun áfram er sjálfur drifkraftur hennar í gyðinglegum og kristnum skilningi ekki lengur fyrir hendi: stefnan að fullkomnun sögunnar, að dómsdegi, endurkomu Krists eða fæðingu Mess- íasar. Því hin táknræna kyrrstaða, frysting alheimsgangverksins, byggir á söguvitund sem gengur út frá hinni stefnubundnu, línulegu sögu. Atburð- irnir, „efnið í sögur og ljóð“, eiga sér stað vegna þess að tveir kraftar, gott og illt, vinna hvor gegn öðrum í baráttu sinni um mannsvitundina á meðan sagan æðir áfram í átt að fyllingu sinni í sjónarspili heimsslitanna eða komu Messíasar. Það sem skiptir máli er ekki að sagan heldur þrátt fýrir allt áfram, heldur að þeir sem taka þátt í henni þykjast sjá að hún standi í stað. Endir sögunnar er hinn hljóði dómsdagur hinna „afhelguðu" sekúlaríseruðu tíma þegar hinna stóru atburða sem grípa inn í gang hennar er ekki lengur að vænta.8 Enginn ytri kraftur stjórnar rás sögunnar og því virðist sá stöðugleiki sem þjóðfélags- og efnahagskerfi Vesturlanda hafa komið á, vera endalok allrar hreyfmgar. Hugmyndin um hreyfmgu í átt til markmiðs hefur ekkert gildi lengur. Engir kraft ar virðast geta gripið inn í söguframvinduna og breytt henni. Tilfinningin íyrir stöðnun sögunnar er vitneskjunni um áframhald hennar yfirsterkari. Formgerð skáldsögunnar byggist á þremur sviðum: sviði sögumannsins (Gólemsins), hinu frumspekilega sviði englanna og demónanna og hinu sögulega sviði íbúanna í smábænum Kukenstadt í Neðra-Saxlandi í Þýska- landi nasismans. Það er á þessu síðasttalda sviði sem sagan stöðvast, mitt í seinni heimsstyrjöld, en á því eru einnig tvær aðalpersónur sögunnar: unga stúlkan Marie-Sophie og gyðingurinn Löwe. Verurnar tvær sem að endingu brjóta hlekki kyrrstöðunnar og skapa nýja mann. Öll þessi þrjú svið byggja að einu eða öðru leyti á trúfræðilegum og dulspekilegum textum. Þetta á ekki aðeins við tvö fyrstu sviðin heldur er sagan af sérkennilegu ástarsam- 118 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.