Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 124
Ritdómar
Feður og synir
Ólafur Jóhann Ólafsson: Sniglaveislan. Vaka-
Helgafell 1994. 174 bls.
Stundum er sagt að þótt oft geti verið
ærin þraut að þola þungan mótbyr í
lífinu sé enn erfiðara að standast öflugan
meðbyr. Slíkur byr moli smám saman
manninn sjálfan vegna þess að lofburð-
ur og sífellt hrós spilli dómgreind og
sjálfsmati viðkomandi. Lífsviska af þessu
tagi hlýtur vitaskuld að höfða alveg sér-
staklega til listamanna sem eiga allt sitt
undir því að halda dómgreind sinni og
sjálfsmati óbrjáluðu.
Ólafur Jóhann Ólafsson varð fyrir
þeirri hremmingu sem kornungur höf-
undur að fá um margt einstakan með-
byr. Hann uppskar bæði lof og prís
gagnrýnenda og alþýðu fyrir fyrstu verk
sín og fágæta metsölu. Og hin jákvæðu
viðbrögð hafa bara orðið sterkari með
hverri bók og Fyrirgeftiing syndanna
(1991) mun vera í hópi mest seldu
skáldsagna á íslandi. Að hluta til eru
sterk viðbrögð almennings sprottin af
því að Ólafur gegnir ábyrgðarstarfi hjá
stórfyrirtæki á erlendri grundu og er
talsvert í sviðsljósinu af þeim sökum.
Hann er hinn nýi ástmögur sem svalar
óslökkvandi þrá þessarar smáþjóðar eft-
ir frægð og frama úti í hinum stóra
heimi. Þegar bækur Ólafs eru kynntar er
líka gjarnan vísað til starfa hans í al-
heimsviðskiptum um leið og minnt er á
að ritstörf séu einungis aukabúgrein
þessa vinsæla höfundar. Leiða má sterk
rök að því að hyllingin, sem einkennt
hefúr markaðssetninguna á Ólafi Jó-
hanni, hafi heldur torveldað honum að
vera teldnn alvarlega sem rithöfundur
og þess vegna hafi bækur hans ekki feng-
ið þá umfjöllun sem þær þó sannarlega
eiga skilið. Umræðunni hefur verið
beint frá bókunum og það er gömul saga
og ný, að þegar einn er settur á stall og
hylltur fara af stað aðrir kraftar að mola
niður. Þá er ekld spurt um sanngirni eða
réttsýni.
Þegar bækur hans eru skoðaðar í
heild og allar kringumstæður hafðar í
huga verður hins vegar ekki annað sagt
en Ólafúr Jóhann Ólafsson hafi staðið
vel undir sjálfum sér sem rithöfundur.
Sögur hans hafa borið vitni einlægri við-
leitni tilþess að fjalla um sígild spursmál
í mannlegu félagi af alvöru og bók-
menntalegum metnaði. Þannig gekk
hann mjög nærri sjálfum sér í Markaðs-
torgi guðanna (1988) um leið og hann
tók fýrir algenga togstreitu samviskunn-
ar og hinnar sterku þrár eftir sigri og ytri
fullnægju sem einkennir svo mjög sam-
keppnissamfélög nútímans. Siðferðileg
efni virðast Ólafi reyndar mjög hugleik-
in og eru gjarnan uppistaða sagna hans,
ekld síst umhugsun um ábyrgð og heið-
arleika hvers manns gagnvart sjálfum
sér, skyldur hans gagnvart eigin sam-
visku. Hann sökkvir sér mun dýpra of-
aní þetta efhi í Fyrirgefningu syndanna,
sem er hiklaust metnaðarfyllsta bók
hans til þessa. Um leið og sú bók hafði
að geyma býsna trúverðuga persónulýs-
122
TMM 1995:4